Sunday, August 31, 2008

Síðustu dagar!

Það er sunnudagur í Harlem og ég sit á kaffihúsi hverfisins, La Perle Noire, en þar kemst ég á netið. Fékk mér "iced café latte" sem er dýrlegt:D.
Við fórum í skólann á föstudaginn á fund fyrir international nemendurna. Það var alveg slatti af fólki sem var að byrja sem er international. Fólk alls staðar að. Frá Hollandi, Frakklandi, Slóveníu, Costa Rica, Kólumbíu og Kanada. Ég hlakka mjög til að kynnast þessum krökkum betur. Þau virtust öll alveg ótrúlega nice og allt við þennan skóla er bara frábært. Konan sem sér um okkur útlendingana er alveg frábær. Svo vorum við að kynna okkur öll og við Hildur og Halla sátum allar í röð. Sögðum allar nöfnin okkar, Hildur-Halla-Helga, og allar bara "WHAT?". Ég semsagt ákvað að láta fólk kalla mig Helgu því allir halda að Ólöf sé strákanafn:(. En við sögðum nöfnin okkar aftur hægt og þá kom þetta hægt og rólega.

Í gær fórum við stelpurnar alveg syðst á eyjuna til að skoða southstreet seaport, brooklynbridge og svona. Við tókum ferjuna sem fer yfir á Staten Island og sáum þá frelsisstyttuna og ýmislegt fleira. Það var líka rosalega gaman að sjá Manhattan svona langt í burtu. Okkur datt ekki í hug að fara að stoppa á Staten Island, því það er víst algjört skítapleis þannig að við hlupum af ferjunni til að komast yfir á næstu ferju sem var að fara af stað. Þegar við vorum komnar aftur á heimaslóðir, Manhattan, röltum við aðeins innar á eyjuna og komumst á Broadway. Við Hildur ákváðum að okkur langaði að shoppa og Halla fór heim til að redda símamálum hjá henni.
Við Hildur löbbuðum alveg frá Southstreet alveg uppá 60. stræti sem er fáránlega langt;). Við kíktum í nokkrar búðir í leiðinni og ég keypti mér langþráða hlíraboli í Banana Republic og geisladisk og Sex and the City í Virgin. Þetta var rosalega skemmtilegt og þegar við eignumst aðeins meiri pening þá kannski leyfum við okkur að fara í Prada, Fendi og þær allar búðir;). Við Hildur vorum semsagt á labbi frá 12 til 7 um kvöldið. Þá drifum við okkur heim því við vorum orðnar ansi svangar.

Við stelpurnar elduðum okkur maccarónur í mjólk með kanilsykri. Hafði aldrei smakkað það áður en ég var nú alveg að fíla það. Mjög góður matur:D. Eftir það skruppum við allar í sturtu því án gríns þá verður maður að fara í sturtu eftir daginn því maður svitnar eins og ég veit ekki hvað í þessum hita hérna. Stelpurnar voru í djammstuði og vildu gera eitthvað skemmtilegt, kíkja á bari og svona. Við reyndum það nú í vikunni að fara að djamma, með Ólöf Ruth, og við máttum ekki vera neins staðar útaf því við erum ekki 21. Þetta er svoooooo glatað að mega fara inná staðina heima á Íslandi en svo flytjum við hingað og þá er bara allt bannað aftur. Allavega þá fóru stelpurnar út í gær í leit að líbó stöðum en fundu enga. Þær gáfust og fóru heim. En við hliðiná okkur er svona barber shop og alltaf einhverjir gaurar fyrir utan. Mjög gaman því við erum alveg farnar að heilsa þeim og læti. Þeir allavega byrjuðu að tala við stelpurnar í gær þegar þær voru að koma heim og buðu okkur að koma í BBQ á morgun, labor day, og svo í partý næstu helgi. Þannig að við erum safe allavega með næstu helgi;).

Það er allaveg rosalega gaman hjá okkur og allt gengur mjög vel. Getum ekki beðið eftir að byrja í skólanum og fá harðsperrur og læti.

Heyrumst seinna, Ólöf

Wednesday, August 27, 2008

Komin aftur!

Loksins fékk ég að komast inná netið. Tölvan mín er eitthvað mjög mikið á móti mér þessa dagana, vill ekki leyfa mér að komast á netið en af einhverjum ástæðum kemst tölvan hennar Hildar alltaf inná netið. Þannig að ég fæ bara að fara inní hennar tölvu!
Við semsagt fórum fyrsta daginn okkar í skólann í gær og ég var veik. Ekki beint það besta því við fórum í placementclasses í gær sem þýðir að það var verið að meta okkur hvar við værum stödd í dansinum. Ég gat ekki rassgat í ballett og lenti því á level 3 en hinar stelpurnar tvær lentu á 4. Ég var svo ótrúúúlega pirruð að ég get ekki lýst því. Þær fóru eitthvað út að skoða borgina eftir á en ég fór bara beinustu leið heim í náttföt og svaf eiginlega allan daginn yfir Friends, þunglynd og veik:(. En ég er búin að ákveða að gera bara það besta úr þessu. Er í móderntímum með stelpunum en annars erum við alltaf í sitthvorum tímunum. Þær eru alltaf saman en ég fæ þá bara að kynnast fullt af nýju fólki í staðinn:D, alltaf gaman. Fórum svo í dag í skólann til að skipuleggja stundatöfluna, segja hvað við ætluðum að velja og svona. Ég verð semsagt í klassík, módern (Horton), Jazzi, Body conditioning og theater arts. Theater arts eru bóklegir tímar, bara listdanssaga held ég.
Síðan fórum við hitta Starker White en hann skoðaði íbúðina fyrir okkur á sínum tíma;). Hann er alveg ótrúlega nice náungi og tók okkur á Sushistað. Ójá, þið eruð að lesa rétt, ég borðaði Sushi. Þetta er ekki eins slæmt og ég var að búast við því ég hafði smakkað það áður og fannst það ógeð en núna var það bara ágætt. Held samt að ég sé komin með í magann eftir það:/. En það var rosalega gaman að kynnast honum Starker og við töluðum heillengi. Svo ætlar hann að hjálpa okkur með partý og svona, láta okkur vita um aðalstaðina og svona:D.
Hittum líka Ólöfu Ruth áðan:D og röltum með henni 5th avenue! Ætlum svo að fara aðeins út á lífið í kvöld! Í fyrsta skipti síðan við komum. Jeij, hlakka til!

Þá kveð ég að sinni kæru börn. Skelli kannski inn fleiri myndum þegar ég verð búin að taka fleiri. Hildur er allavega búin að skella fullt af myndum inná sína síðu, getið séð linkinn hérna til hægri!

Heyrumst ljúflingar, Ólöf

Monday, August 25, 2008

Allt að gerast:D

Og þá er skóli á morgun!!!!:D



Við hlökkum allar mjög mikið til að fá að byrja í skólanum, loksins. Reyndar er ég að verða veik, GLATAÐ, en ég reyni bara að sofa vel í nótt og poppa íbúfen á morgun ef nætursvefninn dugði ekki;)



Skruppum aftur í Central Park í gær að taka því rólega og lentum í einhverri sýningu sem var í gangi. Það voru semsagt tveir gaurar sem kölluðu sig Afrobatz og voru sjúklega fyndnir. Þeir voru með svona danssýningu en samt líka hálfgerða grínsýningu. Voru alltaf eitthvað að grínast og þetta var mjög skemmtilegt. Hildur tók fullt af myndum:D! Síðan uppgötvuðu við Urban Outfitters sem er nýja aðalbúðin okkar og auðvitað þurfti ég að kaupa mér;), fékk mér sjúklega flott svart pils (mig hefur langað í svona pils í ANSI langan tíma), geðveika balletttösku og sæta skó bara svona til að eiga (kostuðu skít á priki).



Gerðum voða lítið annað í gær en bara svona að chilla og skoða borgina, höfum eiginlega ekkert að gera annað þangað til skólinn byrjar. Reyndar fengum við okkur bandarísk símanúmer í gær en bara fyrir gsm og það er svo dýrt að hringja í það þannig að ég læt ykkur vita með símanúmerið þegar við fáum okkur heimasíma.



Dagurinn í dag var bara mjög góður. Við tókum lestina alveg niður á 14. stræti að skoða Greenwich Village sem er ótrúlega sætt hverfi og okkur langar mjöööög mikið að búa þar. Tylltum okkur á lítið sætt kaffihús og fengum okkur kökur og kaffi. Leyfðum okkur það í dag því þetta er síðasti dagurinn áður en skólinn byrjar.

Sunday, August 24, 2008

Myndir

Þið getið fylgst með myndum af okkur inná myndasíðunni minni:

olofhelga.myphotoalbum.com

- Ólöf

Saturday, August 23, 2008

Dagur 2

Það er laugardagur hjá okkur hérna í Harlem og bara blíðan úti, eins og venjulega. Það er búinn að vera steikjandi hiti í allan dag. Við ákváðum að í dag þyrftum við nú að sýna henni Hildi litlu borgina eitthvað, þar sem hún hafði aldrei komið til NYC. Við hófum ferðina á Times Square og kíktum svo líka í nokkrar búðir;). Eftir langt rölt um borgina ákváðum við að fá okkur að borða. Skelltum okkur í WholeFoods (sjúklega gott) og fengum okkur svona matabakka. Það var hægt að velja úr svooo miklu, salati, indverskum mat og margt margt fleira. Og svo auðvitað eftirréttir. Reyndar er þetta svolítið dýrt fyrir okkar smekk en við sættum okkur við þetta svona einu sinni. Við fórum í Central Park til að borða þetta, en þar voru einhverjir hippar að tala um frið og konurnar voru allar berbrjósta. Svo kom kona líka að okkur bara: "Hey, you are not showing your boobs." Haha, mjög fyndið, en við ákváðum að ganga ekki svo langt.

Þegar við vorum orðnar saddar röltum við í subway til að taka lestina niður á 34. stræti þar sem við þurftum að skella okkur í Kmart til að kaupa skrúfjárn, öðruvísi gátum við ekki sett borðið okkar og kommóður saman;).

Nú var komið að því að ég þurfti voðalega mikið að fara á klósettið þannig að við fórum inní næsta Starbucks og ég ætlaði að fá að fara á klósettið. Klósettið sagði occupied þannig að ég beið bara. Þegar ég var búin að bíða í svona korter þá ákvað ég að taka í húninn til að sjá hvort það væri ekki alveg örugglega læst. Jú, það var læst. Beið ég í aðrar 5 mínútur þegar loksins einhver ógeðslegasti kall opnaði hurðina. Hann var ístuttbuxum með opna skyrtu og bumbuna lafandi út. Hárið ógeðslega skítugt og með skegg. Hann kom út og byrjðai að ÖSKRA á mig að ég væri "retard" og "fucking bitch" að hafa tekið í hurðarhúninn þegar það stóð occupied. Svo skellti hann hurðinni á klósettinu sjúklega fast og hélt áfram á æpa á mig. Ég var svo ótrúlega hrædd sko og hélt að hann ætlaði að ráðast á mig en þá kom maður frá Starbucks-crewinu og ætlaði að vísa honum út. Ég náttúrulega fór ekki á þetta klósett sem var viðbjóðslegt eftir þennan kall, ég get sagt ykkur að hann hefur verið að gera eitthvað allt annað en að kasta af sér hlandi þarna inni. Síðan vildi maðurinn ekkert fara útúr kaffihúsinu og ég, Hildur og Halla hlupum bara út og ég var svo ótrúlega hrædd það sem eftir var. Ég var alltaf að líta aftur fyrir mig hvort hann hefði kannski elt okkur.

Við tókum lestina heim eftir þetta.

- Ólöf

Friday, August 22, 2008

Komin Heim!

Jæja, þá er maður búin að koma sér í fyrstu íbúðina sína í ghettoinu Harlem í Manhattan. Við lentum á JFK í gærkvöldi kl. 18:30 á bandarískum tíma (4 tíma munur). Þá drifum við okkur í gegnum immigration tékkið, sumir fóru að flirta við immigration-manninn. Þegar við loksins kláruðum þann fjanda hófst önnur bið að töskunum okkar, og biðin var LÖNG. Ég hélt á tímibili að töskurnar hefðu kannski bara sprungið á leiðinni, aðeins og þungar;). En á endanum fengum við allan farangurinn okkar, drifum okkur í bílinn okkar sem við höfðum pantað okkur og beina leið heim! Við urðum nú dulítið smeykar þegar við sáum hverfið svona í myrkri en þetta lítur nú svosem alveg þokkalega út í dagsbirtu. Reyndar eru hvítir menn klárlega í minnihluta hérna sem er voðalega fyndið, manni líður voða skringilega. Sáum sveitta svertingja í körfu og læti;).
Svo þegar við komum loksins í íbúðina okkar þá var ekkert annað gert en náð í sængurnar, lagst á gólfið og farið að sofa!!!!!

Við vöknuðum hálf7 í morgun, háfl11 á íslenskum tíma. Farið var í IKEA eldsnemma í subway:) Við vorum svo sannarlega ekki að spara og gerðum gríðarkaup. Fengum okkur allar rúm og kommóður og svo keyptum við borð og stóla til að eiga í eldhúsinu OKKAR:D Bíðum nú spenntar eftir sendiferðabílnum til að koma með dótið okkar. Þetta er allt koma til hjá okkur Höllu og Hildi.

Nóg í bili. Heyrumst seinna dúllur:*

- Ólöf