Monday, August 25, 2008

Allt að gerast:D

Og þá er skóli á morgun!!!!:D



Við hlökkum allar mjög mikið til að fá að byrja í skólanum, loksins. Reyndar er ég að verða veik, GLATAÐ, en ég reyni bara að sofa vel í nótt og poppa íbúfen á morgun ef nætursvefninn dugði ekki;)



Skruppum aftur í Central Park í gær að taka því rólega og lentum í einhverri sýningu sem var í gangi. Það voru semsagt tveir gaurar sem kölluðu sig Afrobatz og voru sjúklega fyndnir. Þeir voru með svona danssýningu en samt líka hálfgerða grínsýningu. Voru alltaf eitthvað að grínast og þetta var mjög skemmtilegt. Hildur tók fullt af myndum:D! Síðan uppgötvuðu við Urban Outfitters sem er nýja aðalbúðin okkar og auðvitað þurfti ég að kaupa mér;), fékk mér sjúklega flott svart pils (mig hefur langað í svona pils í ANSI langan tíma), geðveika balletttösku og sæta skó bara svona til að eiga (kostuðu skít á priki).



Gerðum voða lítið annað í gær en bara svona að chilla og skoða borgina, höfum eiginlega ekkert að gera annað þangað til skólinn byrjar. Reyndar fengum við okkur bandarísk símanúmer í gær en bara fyrir gsm og það er svo dýrt að hringja í það þannig að ég læt ykkur vita með símanúmerið þegar við fáum okkur heimasíma.



Dagurinn í dag var bara mjög góður. Við tókum lestina alveg niður á 14. stræti að skoða Greenwich Village sem er ótrúlega sætt hverfi og okkur langar mjöööög mikið að búa þar. Tylltum okkur á lítið sætt kaffihús og fengum okkur kökur og kaffi. Leyfðum okkur það í dag því þetta er síðasti dagurinn áður en skólinn byrjar.

3 comments:

Unknown said...

Gott að vita að það sé stuð hjá ykkur!! :) Verið svo duglegar að setja myndir og blogga!!

Unknown said...

Kaffi og kökur!! Eruð þið á leiðinni í The Big Ballet eða?!

Unknown said...

hahaha.. mjög fyndin klósettsaga

En hlakka til að heyra frá hvernig fyrsti skóladagurinn var svo.
En frábært hvað þið eruð búnar að koma ykkur vel fyrir.. sjit þetta hljómar allt svo rosalega vel hjá ykkur þarna úti;)

knús
Mardís