Jæja, þá er maður búin að koma sér í fyrstu íbúðina sína í ghettoinu Harlem í Manhattan. Við lentum á JFK í gærkvöldi kl. 18:30 á bandarískum tíma (4 tíma munur). Þá drifum við okkur í gegnum immigration tékkið, sumir fóru að flirta við immigration-manninn. Þegar við loksins kláruðum þann fjanda hófst önnur bið að töskunum okkar, og biðin var LÖNG. Ég hélt á tímibili að töskurnar hefðu kannski bara sprungið á leiðinni, aðeins og þungar;). En á endanum fengum við allan farangurinn okkar, drifum okkur í bílinn okkar sem við höfðum pantað okkur og beina leið heim! Við urðum nú dulítið smeykar þegar við sáum hverfið svona í myrkri en þetta lítur nú svosem alveg þokkalega út í dagsbirtu. Reyndar eru hvítir menn klárlega í minnihluta hérna sem er voðalega fyndið, manni líður voða skringilega. Sáum sveitta svertingja í körfu og læti;).
Svo þegar við komum loksins í íbúðina okkar þá var ekkert annað gert en náð í sængurnar, lagst á gólfið og farið að sofa!!!!!
Við vöknuðum hálf7 í morgun, háfl11 á íslenskum tíma. Farið var í IKEA eldsnemma í subway:) Við vorum svo sannarlega ekki að spara og gerðum gríðarkaup. Fengum okkur allar rúm og kommóður og svo keyptum við borð og stóla til að eiga í eldhúsinu OKKAR:D Bíðum nú spenntar eftir sendiferðabílnum til að koma með dótið okkar. Þetta er allt koma til hjá okkur Höllu og Hildi.
Nóg í bili. Heyrumst seinna dúllur:*
- Ólöf
Friday, August 22, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

2 comments:
ÉG ÖFUNDA ÞIG SVOO MIIIIKIÐ, en samgleðst um leið!
Gaman að lesa, viltu svo kannski taka myndir af cribinu og skella inn!
vá hvað þetta hljómar vel! :)
ég er sammála vigdísi...núna þurfum við myndir af íbúðinni og hverfinu ;)
Post a Comment