Wednesday, September 10, 2008

10. september

Vikan hálfnuð hjá okkur stöllunum hérna í Harlem. Ég er strax farin að hlakka til helgarinnar. Ekki það að það er leiðinlegt í skólanum, þvert á móti, hlakka bara soldið mikið til að þurfa ekki að vakna hálf7 um morguninn og geti bara sofið út. Miðvikudagar eru alltaf frekar chillaðir skóladagar hjá mér. Fer í Horton tíma með Milton Meyers, yndislega sætur maður sem er alveg ótrúlega skemmtilegur. Hann er alveg rosalega nice en á sama tíma mjög strangur sem maður þarf alveg á að halda. Síðan fórum við stelpurnar í eins og hálfs tíma hlé. Það var voða kósý. Sátum bara fyrir utan skólann okkar og ég lagðist bara útaf og dottaði örlítið. Eftir hléið var Body Conditioning hjá mér með henni Wendy Amos. Hún er líka svona eldri kona sem er alveg ljúfari en allt en aftur á móti mjög hörð við mann. Það þýðir ekkert að hangsa í tímum hjá henni. Eftir Body Conditionin tók við tveggja og hálfs tíma pása sem ég er í á hverjum einasta degi. Alltof löng pása að mínu mati en svona er þetta. Í breikinu mínu kynntist ég fullt af nýjum stelpum. Ég kynntist þremur stelpum frá Suður-Ameríku (Costa-Rica, Chile og Kólumbíu) og ein er frá Hollandi. Þær voru alveg rosalega skemmtilegar. Hef verið að reyna að tala við bandaríska krakka en við erum allar frekar sammála um að það er svo erfitt að tala við þessa krakka. Þau hafa svo allt aðra hugmynd um lífið en við. Þau eru alveg rosalega fáfróð um heiminn og tala um allt aðra hluti en við höfum áhuga á eins og t.d. hvort að þær eru í sokkum eða ekki í kringum kærastana þeirra því þær eru með svo ljóta dansarafætur o.s.frv. Ég bara get ekki talað um svona yfirborðskennda hluti. En stelpurnar frá Suður-Ameríku eru alveg órtúlega nice og mjög jarðbundnar.

Núna sit ég bara ein á La Perle Noir, kaffihúsinu okkar, og er að hanga á msn og svona. Sem ég geri ég hverjum einasta degi eftir skóla. En ég ætla að segja þetta gott í dag. Stelpurnar eru að bíða eftir mér að fara niður í bæ. Þangað til næst!!

- Ólöf

1 comment:

Unknown said...

Halló!! Hvar eru nýjar myndir?!??!