Thursday, September 11, 2008

3 vikur!

Það eru komnar nýjar myndir inná myndasíðuna mína. Linkurinn er hér til hægri á síðunni. Svo getiði líka tékkað á bloggum stelpnanna og myndunum hennar Hildar.

En já nú eru þrjár vikur liðnar síðan við mættum á svæðið. Það styttist í mánuðinn. Þetta eru búnar að vera heljarinnar þrjár vikur og margt búið að gerast hjá okkur. Um helgina förum við í okkar fyrsta partý, loksins. Ólöf reddaði okkur, fann eitthvað partý (fyrir litlu börnin þar sem við erum ekki orðnar 21) sem er fyrir 19 ára og eldri. Við hlökkum mjöööög til. Svo er búið að bjóða okkur í African-American skrúðgöngu sem verður á sunnudeginum hérna í Harlem. Borboun, gaur sem við kynntumst sem er alltaf að hanga í Barber shoppinu við hliðiná, bauð okkur að koma. Sagðist endilega vilja fá okkur. Hann er mesti snillingur sko. Hann er svona rétt rúmlega þrítugur, örugglega atvinnulaus, og er alltaf á röltinu. Hann er með bling í báðum eyrunum og alveg ótrúlega fyndinn. Ruglar okkur Höllu alltaf saman, sem er ótrúlegt þar sem við erum eins og svart og hvítt. Svo erum við alltaf að hitta á hann á leiðinni heim úr skólanum. Það er svo geðveikt gaman alltaf að hitta hann. Tökumst alltaf í hendur svona eins og alvöru svertingjagaurar gera, ef þið vitið hvað ég meina;).

Var í tíma í dag og ég fékk á tilfinninguna eins og að tvær stelpur sem eru með mér í tímum, sem eru btw 18 ára og alveg frekar fáfróðar, þoli mig ekki. Hef reynt að tala við þær en það er useless, þær vita ekki neitt um lífið. Svona alveg ótrúlega týpiskir Bandaríkjamenn. Allavega þá semsagt byrjaði það eiginlega í jazzi á þriðjudaginn þegar ég var í hóp í horninu með annarri þeirra. Hún var alltaf að fara ofan á mig sem þýddi að ég gat ekki gert æfingarnar almennilega þannig að ég endaði bara með því að segja við hana að hún væri alltof nálægt mér og að hún þyrfti að færa sig aðeins lengra. Svo í morgun var ég í Horton og var að fara að gera æfingu og hin stelpan, þær eru semsagt vinkonur, stóð frekar nálægt mér. Ég sagði "Watch out", því ég var að fara að sparka fætinum út. Svo kemur hún yfir gólfið, búin að gera æfinguna, og segir "You watch out" við mig. Ég bara "What". Svo voru þær alltaf að gefa mér ill augu og svona. Voðalega spes. En what the hell mér er drullusama. Kannski fer það í taugarnar á þeim hvað ég er miklu betri en þær;). Hehe!!!

Peace out peeps....Ólöf

1 comment:

Sif said...

Hahaha snilld....þú átt pottþétt eftir að lenda í einhverjum catfight miiawww!:D Sakna þín alveg rosa ástin mín;* Sorry hvað ég hef ekkert commentað, búið að vera mikið að gera hjá mér. Ég, Vigdís, Bíbí og Steinunn Edda erum að dansa í nýjum þætti á Íslandi sem heitir Singing Bee og er upprunalega bandarískur þáttur...getur farið á youtube og athugað hvernig þetta er The Singing Bee....þetter sem sagt söngvakeppni þ.s. þú þarft ekki að vera góður í að syngja heldur bara kunna textann og þú getur unnið allt að 500.000 þúsund....fyrsta serían var tekin upp í síðustu viku, 10 þættir, og ég er alveg búin eftir það...samt geðveikt gaman að taka þátt í þessu...þetta byrjar á föstudaginn...Jónsi er kynnir og Buffið spilar lögin...á sunnudaginn fórum við svo að djamma með þeim öllum tilað fagna 1. seríunni, mjög skemmtilegt fólk.....
Haltu áfram að vera svona dugleg að blogga, ekkert smá gaman að lesa bloggið þitt sæta mín;* Langar svooo tilað koma í heimsókn!
Elska þig út í eitt, þín Sibba;*