Friday, September 5, 2008

5.september

Þá er fyrsta skólavikan búin. Ég er að deyja í fótunum og bakinu, klikkaðar harðsperrur. Líður samt svoooo vel að vera farin að hreyfa mig aftur og bara farin að DANSA aftur. Þrátt fyrir það að ég er ennþá ekki alveg nógu ánægð með annan ballettkennarann minn þá eru hinir tímarnir alveg mjög skemmtilegir. Þessi kennari er alveg kafli fyrir sig. Hann heitir Mr. Atwood og er kall um fimmtugt, líklegast svona 55 ára, og hann er með grátt hár yfirgreitt yfir skallann. Svo er hann alltaf í sweat-pants sem eru girtar uppí háls og alveg ótrúúúúlega grannur maður. hann er með brjálaðan útsnúning og þrátt fyrir háan aldur þá er hann ennþá með fæturnir yfir 90° og læti. Svo alltaf áður en hann sýnir æfingar þá byrjar hann að söngla. Það er reyndar mjög fyndið. Málið er bara það að hann leggur svo klikkaðslega mikla áherslu á að gera allar, og þá meina ég ALLAR, æfingar svo ótrúúúlega hægt. Það er reyndar þannig séð alveg hollt fyrir mig þar sem ég þarf svo mikið að vinna að því að ná útsnúningnum aftur. Hann er í algjöru fokki hjá mér. Reyndar fór það aftur soldið í taugarnar á mér að ég sé á 3. leveli því að ég var að horfa á tímann hjá stelpunum, level 4, og ég sá alveg nokkrar stelpur sem mér fannst ekkert betri en ég. Það er soldið mikill bömmer þegar maður sér það en svona er þetta bara.
Var í ballett með hinum kennaranum í gær, sem ég er með á þriðjudögum á fimmtudögum, og hann heitir Pedro Ruiz. Hann er af spænskum ættum og segir öll ballettorðin með svona spænskum hreim. Ótrúlega skemmtilegt að hlusta á hann. Svo er hann alveg rosalega skemmtilegur, gerir mjöööög skemmtilegar æfingar. Væri frekar til í að hafa hann þrisvar í viku og Mr. Atwood tvisvar en svona er lífið.

En ég VERÐ að segja ykkur frá jazz-kennaranum mínum. Hann er alveg æðislega fyndinn eitthvað. Þetta er án gríns svona sextugur kall með skalla og svona smá skegg. Og hann er fyndnari en ALLT. Hann talar eins og hann sé svona 16 ára svört stelpa. Alltar að smella fingrunum og segja orð eins og "Boooty" og "Giiiiirl". Ég hætti ekki að hlægja í tímanum hans. Það sem er þó soldið fúlt er að ég er bara með hann tvisvar í viku. Langaði soldið að skipta yfir í tímana sem stelpurnar eru í. Það er Jazz 3 en ég er í Jazz 2 og ég veit alveg að ég get verið í erfiðari tímum í jazzi. En svo eru þeir alltaf svo rosalega seint og þá væri ég alltaf búin 4.20 í skólanum og svo á föstudögum 5.50, sem mér finnst soldið mikið:S. Ég ætla bara að láta nægja að vera í þessum tímum allavega fram að jólum, og bara kick ass:D. Svo sé ég til hvort ég skipti ekki bara eftir jól.
Svo er það náttúrulega Body Conditioning. Konan sem kennir það er alveg dýrleg. Hún er líka svona um 50 eða 60 ára gömul og rosalega fyndin í útliti. Alveg ótrúlega lífsglöð og alltaf brosandi. Það er alveg ótrúlega erfitt í tímum hjá henni, brjálaðar magaæfingar og læti, mjög að fíla það.

En nóg í dag! Læt heyra í mér um helgina!

- Ólöf

1 comment:

Ólafur Grétar Kristjánsson said...

Gaman að lesa bloggin þín, Ólöf! Og sérstaklega að bera þessar þrjár ólíku útgáfur ykkar stelpnanna saman. Segðu okkur bara sem greinilegast frá því sem Hildur okkar aðhefst! Vil viljum fylgjast með. Og hafðu engar áhyggjur, með þínum krafti, jákvæðni og bjartsýni þá kemstu þangað sem þú vilt í dansinum.