Monday, September 8, 2008

8. september

Skólinn aftur kominn á fullt eftir ljúfa helgi sem var reyndar gríðarlega fljót að líða. Á föstudeginum áttum við að fá rúmbotnana okkar, svona gaurar undir dýnurnar okkar til að hækka rúmin (erum búnar að sofa með dýnuna á gólfinu í 2 vikur). Botnarnir áttu semsagt að koma milli 17 og 21 um kvöldið á föstudeginum. Síðan þegar þeir komu aldrei þá ákvað ég að hringja og athuga með þetta allt sama. Ég fékk einhvern gaur í símann sem vísaði mér á annan gaur og þá kom bara talhólf. Þá hringdi ég aftur og þá gat fyrsti gaurinn víst alveg hjálpað mér eftir allt saman. Eftir mjööööög langan tíma í símanum fékk ég að vita að sendingin okkar átti að vera að bókuð. "Hvaða vitleysa er það?" æpti ég í símann, ætlaði sko ekki að láta þetta líða. Þá sagði hann mér að málið væri það að þeir hefðu reynt að hringja í okkur til að staðfesta tímann en þá erum við náttúrulega búnar að skipta um símanúmer, komnar með bandarísk númer, þannig að við gátum ekki svarað. Þá bara ákváðu þeir að hætta við að senda okkur fokking rúmin. Algjört helvítis kjaftæði! Og það sem ég þurfti að gera var að hringja í eitthvað enn annað númer daginn eftir. Ég var orðin ansi pirruð en ég ákvað að láta það ekki bitna á manninum þar sem hann var "in the assembly department and not supposed to do this" eins og hann orðaði það. Alveg rosalega spes hvað maður fær lélega þjónustu hérna í Ameríku á sumum sviðum. Klukkan var 9 um morgun á laugardeginum þegar ég vaknaði og hringdi í þetta númer. Þar fékk ég að tala við konu sem sagði mér aftur að það átti eftir að bóka sendinguna. Sagði mér svo að við fengjum þetta ekki fyrr en á þriðjudeginum. Ég hló beint framan í hana og sagði að ég ætlaði svo sannarlega ekki að sætta mig við það heldur ætlaði að fá sendinguna í dag. Þá sagði hún "I will call you back ma'm, I will do the best I can". Aldrei hringdi konan aftur heldur hringdi voðalega indæll maður í mig um 11 og sagði mér að botnarnir kæmu milli 2 og 6. Loksins fengum við botnana okkar um hálf4 sem var ljúft og nóttin, laugardag til sunnudags var ljúflegasta nóttin hingað til:D.

Á sunnudeginum fórum við Hildar í smá trans. Fórum niðrí í bæ í þeim tilgangi að bara chilla og hafa það kósý. Byrjuðum á að fara í Barnes and Noble að fá okkur kaffi og bækur, alltaf klassískt, og svo röltum við á 5th avenue til að skoða í búðir:D. Við löbbuðum framhjá Fashion Week tjöldunum og þar stóð FULLT af fólki fyrir utan með skilti í einhverjum skrýtunum kanínubúningum að æpa eitthvað að það ætti að hætta að drepa dýr fyrir föt og svo framvegis. Það var alveg ótrúlega fyndið, því þetta voru alveg eins aðstæður eins og í Sex and the City þegar Samantha fékk yfir sig rauða málningu þegar hún var að labba af Fashion Week því hún var í hvítri kápu. Mjög fyndið. Við röltum áfram og fórum í Saks 5th avenue beint á 8. hæðina, shoe heaven. Það var meira að segja sér lyfta sem fór bara upp og niður á milli 8. hæðarinnar og groundfloor. Þetta var dýrlegt, allt morandi í merkjaskóm. Louboutin, Gucci, Chanel, Fendi o.s.frv. Það var ógeðslega gaman að skoða og máta 800 $ skó:D Svo auðvitað fór Hildur í transinn sem ég talaði um áðan og fékk sér skó. Alveg crazy en já við semsagt drifum okkur aftur í Harlem til að ná í vísakortið hennar Hildar og veskið mitt, fórum svo alla leið aftur niður í bæ. Hildur keypti sér Chanel skó og Nine West hæla og ég keypti mér Nine West hæla á útsölu:D. Mjög góð kaup hjá okkur að mínu mati! Tek myndir af mér í skónum og skelli myndunum á netið. Heyrðu já og svo kemur ný syrpa af myndum af morgun, nennti ekki að taka myndavélina með á kaffihúsið núna. Svo var bara skóli í dag, same old same old.

Fórum rendar í okkar fyrsta Theater Arts tíma og það er bara mjög skemmtilegt. Hún er bara í rauninni að kenna okkur að fara út í heiminn eftir skólann og finna okkur vinnu. Hvernig við fáum okkur Agent og hvað við þyrftum að gera í áheyrnarprufum o.s.frv. Förum í söngtíma, leiktíma og svona kemur rithöfundur og talar líka við okkur. Hahahahaha! Við í söng!!!!!!

Nóg í dag......Ólöf

1 comment:

Unknown said...

Oh....Nine West hælar...pant!!