Sunday, September 21, 2008

Andskotans Aldurstakmark

Ok, við stelpurnar vorum farnar að sætta okkur svona þokkalega við að við getum ekki farið inná skemmtistaði hérna og svona en svo í gær þá fylltist mælirinn algjörlega hjá mér. Ég var búin að redda okkur stelpunum miða á Mugison tónleikana, sambönd sko. Nei semsagt frændi Arnórs, Biggi, er rótari fyrir Mugison hljómsveitina og hann fékk miða fyrir okkur. Við erum búnar að vera sjúúúklega spenntar að fá að fara á þessa tónleika í heila viku núna. Svo í gær var loksins komið að því og ég var búin að kaupa mér nýjan bol og allt. Við mætum á staðinn og ég segi við dyravörðinn að við séum á gestalistanum en honum er drullusama um það og biður okkur bara um ID. Ég sýni honum mitt og hann gerir enga athugasemd (greinilega mjög heimskur maður) en svo sýnir Hildur honum sitt og þá bannar hann okkur að fara inn því hann sér að Hildur er ekki orðin 21 árs. Ég sagði eitthvað:" We are on the fucking guest list" og hann hlustaði ekkert á mig. Svo hófst biðin endalausa. Biðum fyrir utan staðinn í svona allavega háfltíma og ég á fullu að reyna að hringja í Bigga og sendi honum sms. Svo loksins kom hann út um háfl9 og ætlaði að reyna að hjálpa okkur að komast inn. Byrjar á því að reyna "þær eru með mér" moveið sem var ekkert að virka því þeir spurðu strax um ID. Þá tók hann klassíska "þær eru ekki með skilríki" moveið sem þeir afskrifuðu alveg eins og skot. Vildu ekkert vinna með okkur hérna. Biggi fór þá inn og talaði held ég við managerinn og læti og var alveg í svona 20 mínútur að reyna að koma okkur inn. Það endaði með því að hljómsveitin kom öll út, The Mugsion, og þeir voru allir að reyna að hjálpa okkur. Biggi sagði held ég meira að segja að við værum að fara að spila með hljómsveitinni og eitthvað þannig rugl. En já semsagt á endanum þá fórum við í bömmer heim með lestinni og tókum Ólöf Ruth með okkur. 
Það var reyndar eitt soldið fyndið að á meðan við vorum að bíða eftir að Biggi var að reyna að redda okkur þá kynntumst við tengdó hans Mugison. Semsagt pabba hennar Rúnu. Þau búa í Connecticut í einhverju húsi þar hjá eitthvað svaka stóru vatni og þau eru alltaf að sigla og elda góðan mat. Hann gaf okkur símanúmerið sitt og e-mailið og sagði okkur að hafa samband við sig því að allir væru velkomnir heim til þeirra í mat og nóg pláss fyrir alla til að gista. Hann var alveg rosalega nice gæi, ótrúlega fyndinn. Talaði svona hálfa íslensku, hálfa ensku. En já kannski höfum við bara samband og bjóðum okkur í mat til þeirra við tækifæri. 

En eitt var mjöööög fyndið. Arnór var búinn að segja mér að ég gæti reynt eins og ég vildi að fá það uppúr Bigga hvenær hann kæmi og hann myndi ekki gefa sig. Svo þegar ég var að tala við Bigga þá sagði hann:"Kemur Arnór svo ekki í október?", og ég bara:"UUUhhh, veit ekki. Hann hefur náttúrulega ekki sagt mér neitt." Biggi:"Jú, ég held hann komi 9.október." Þannig að Arnór þetta var svo sannarlega ekki flókið, ég þurfti ekki einu sinni að spyrja hann. FACE!!!

Svo er það skólinn aftur á morgun. Enn ein vikan af þreytuverkjum en það er bara gaman. Ég fylltist svo gríðarlega mikilli orku í Horton-tíma á föstudeginum og ég vona að það verði aftur þannig á morgun. Milton Meyers er besti kennari í geimi!!

Þar til næst - Ólöf

2 comments:

Unknown said...

Haha, þú ert svo glær væna! Þetta er allt eitt stórt samsæri, hann kemur ekki fyrr en 22.okt! ;)

Unknown said...

woot, nóri fór útá flugvöll í morgun...