Arnór gaf mér næstum því hjartaáfall í gærkvöldi þegar hann hringdi í mig um 9 leytið. Við Halla sátum inni í herberginu hennar að horfa á Friends, minding our own business, þegar síminn minn hringdi. Ég stekk fram og sé að Arnór er að hringja. Ég svara honum mjög glöð að heyra í honum og það fyrsta sem hann segir er:"Númer hvað er húsið ykkar í New York?" Ég skildi ekkert hvað hann var að fara með það en ég allavega bara svaraði honum. Þá sagðist hann bara eitthvað vera að chilla í New York og ákvað að kíkja við. Ég missti andann næstum og skildi ekkert hvað hann var að segja því hann var búinn að segja mér að hann kæmi eftir viku. Ég var svo pottþétt á því að hann hefði ekki verið að ljúga og hefði bara óvart sagt mér það. Svo lít ég útum gluggann og sé leigubíl rétt hjá íbúðinni. Ég vissi ekki hvað ég átti að halda og Halla stóð fyrir aftan mig eins og eitthvað gimp hlæjandi af sér hendina. Ég hugsaði ekkert heldur kastaði frá mér símanum og hljóp niður á sokkalistunum. Þegar ég opnaði hurðina niðri sá ég í taxanum að þetta VAR Arnór sem sat þarna í bílnum og var að borga bílstjóranum. Ég brást við mér því að fara í hláturskast og stóð þarna í bleytunni á sokkalistunum alveg sama. Ég hrinti honum næstum um koll þegar ég henti mér á hann og kyssti hann og knúsaði. Hann kom mér SVO SANNARLEGA í opna skjöldu. Mig grunaði bara ekki neitt. En ég er svo hamingjusöm að hann sé kominn til mín elsku ástin mín!!!
Stelpurnar eru að koma í heimsókn til okkar í kvöld og það verður svo sannarlega djammað. Enda gríðartilefni til þess en ég kem að því seinna.
Hamingjukveðjur frá Harlem, Ólöf

2 comments:
Til lukku bæði tvö! Pabbi hefði átt afmæli í dag og við fórum öll út að borða í hádeginu saman, börn, barnabörn og mamma. Allt í einu sagði Guðrún að hún væri með fréttir af þér og Rúnar sagði já ég veit og svo komu fréttirnar. Kær kveðja frá öllum úr Bakavörinni :)
Kveðja frá öllum úr Bakkavörinni :) love Ásta
Post a Comment