Tuesday, September 2, 2008

Fyrsta djamm!

Við ákváðum að láta á það reyna að kaupa áfengi á sunnudagskvöldinu og það heppnaðist bara helvíti vel hjá okkur. Ásgeir, vinur Höllu, kom í heimsókn til okkar og við fengum okkur nokkra bjölla. Þar sem við komumst ekki inná neina staði hérna þurftum við bara að láta okkur nægja að kaupa sjoppubjór. Keyptum nú reyndar víst einhvern rónabjór sem við komumst að seinna um kvöldið sem hét King Cobra og var 6%, hehe;).
Við Hildur semsagt röltum útí sjoppu til að kaupa meiri bjór og þegar við vorum á leiðinni þangað hittum við á einherja kellu sem bað okkur um quarter. Við áttum ekkert en Hildur sagði: "Mabey after we have gone to the store". En í stað þess að bíða eftir okkur þá ákvað hún bara að elta okkur, sjúklega subbuleg drusla, og ætlaði að biðja okkur um bjór. Við þorðum ekki annað og gáfum henni bara einn bjór og dollara, bjórinn var nú ekki beint dýr. Þegar við mættum fyrir utan íbúðina þá hittum við á gaurana að drekka fyrir utan Barber shopið við hliðiná okkur. Við byrjuðum að spjalla við þá og kölluðum svo í Höllu og Ásgeir til að koma niður. Svo bara vorum við þar allt kvöldið að spjalla við strákana, sem voru allir reyndar meira og minna næstum þrítugir. Semsagt á bilinu 27 ára og 40 ára. Mér fannst bjórinn svo viðbjóðslega vondur að ég súpti svona rétt svo eina dós og þá var ég komin með nóg. En stelpurnar fengu svo sannarlega ekki nóg. Þær voru bara hressar:D. Það var sko sjúklega gaman að kynnast þessum strákum og spjalla við þá um Harlem. Svo þegar það kom að því að kynna okkur þá flæktust málin. Við semsgt vorum með alltof flókin nöfn fyrir þá og þar af leiðandi ákváðu þeir að gefa okkur öllum Harlem-nöfn. Og hér koma nöfnin, be prepared:

Halla - THE ROCK
Hildur - Sugah Hill
Ég - The GLUE

Við hlógum dátt allt kvöldið, og Hildur aðeins lengur en við ;). Þetta er semsagt sagan mín af okkar fyrsta djammi í New York. Síðan á mánudeginum höfðu strákarnir boðið okkur að fara með sér í skrúðgöngu í Brooklyn en stelpurnar voru svo gríðarlega þreyttar að við beiluðum. Beiluðum síðan líka á grillinu sem þeir buðu okkur líka í. Þeir hafa þó verið að hringja reglulega í okkur og tékka á okkur þannig að þeim hefur greinilega fundist við mjööög skemmtilegar:D.

Nóg í bili!

- The Glue (a.k.a. Ólöf Helga)

No comments: