Monday, September 29, 2008

Herlegheit

Á laugardeginum tók ég Arnór með mér að skoða Central Park. Hann var voðalega æstur að skoða garðinn þannig að við skelltum okkur. Við röltum um garðinn í þónokkurn tíma því Arnór vildi endilega finna stað þar sem við vorum ein. Skildi ekkert í honum en svo loksins þegar við fundum stað þar sem við vorum ein þá stoppaði hann mig allt í einu. Hann fór að segja mér hvað hann elskaði mig mikið og svoleiðis og dróg svo upp hring:D. Ég fór í algjöra kleinu og vissi ekkert hvað var að gerast. Svo þegar ég loksins komst niður á jörðina þá spurði hann mig hvort ég vildi trúlofast honum og ég auðvitað játaði því. Mér finnst þetta hálfótrúlegt að þetta hafi gerst en svo líður mér líka rosalega vel yfir þessu. Það eru eflaust margir að velta því fyrir sér hvað við erum að hugsa þar sem við erum svo ung en þegar maður veit það þá veit maður það bara og ekkert hægt að útskýra það neitt frekar. 

Jæja, þá héldum við okkar fyrsta almennilega partý um helgina. Á laugardagskvöldinu buðum við vinkonum okkur frá Latin-Amerika að joina okkur í smá drykkju. Hidur og Halla fóru út að sækja þær á lestarstöðina um 9 leytið og voru ekki komna fyrr en um 10 til baka því þær villtust víst eitthvað þessar elskur, Tatiana og Natalia. Nehuian fór uppúr lestinni á einhverjum kolvitlausum stað þannig að þær þurftu að fara alla leið að sækja hana síðan líka. En Camila á ekki síma, eða á aldrei inneign, þannig að það er ekki hægt að hringja í hana og við vissum ekkert hvar hún var eða neitt þannig að við fórum bara heim og þurftum að bíða eftir að hún hringdi í okkur. Svo loksins hringdi hún í okkur og við fórum að sækja hana. Og þá byrjaði ballið sko. Það mættu einhverjir gaurar heim til okkar sem við þekktum ekki rassgat. Ég var ekki alveg að fíla það að bjóða bara einhverjir hérna upp í íbúðina okkar en þeir voru svosem ágætir og ég nennti ekki að vera með bögg. Annar þeirra var samt semí ógeðslegur og hét Amen (líka kallaður Jesus) og hinn hét Walter (kallaður Young Skywalker). Amen var alltaf að snerta stelpurnar á óþægilegum stöðum og okkur fannst hann frekar creepy. Langar aldrei að fá þessa menn inn til mín aftur. Partýið var orðið helvíti hresst, enda var nóg til af bjór og einhver mætti líka með Malibu flöskur þannig að það var nóg til fyrir alla. Svo fannst mér svo kjánalegt að allir voru að kalla þetta "engagement-party" sem er svoooo bandarískt og ég var eiginlega ekki að fíla alla þessa klisju. En ég meina maður er nú í USA. 
Það var hringt á dyrabjölluna okkar í miðjum herlegheitum og einhver bara opnaði fyrir þeim sem var að hringja eins og ekkert væri sjálfsagðara. Athugaði ekkert hver þetta væri eða neitt. Svo voru þetta einhverjir gaurar sem strákarnir sögðu að væri ekki "good company" og þá fylltist mælirinn. Ég varð svo brjáluð að einhver hefði bara hleypt þeim inn og ég sagði bara:"Nei, þið eruð ekki velkomnir og rak þá út". Ég vil ekki fá hvern sem er hérna inn. 
Eftir þetta fór partýið eiginlega bara hægt og rólega að taka enda en partý er ekki partý ef enginn ælir og auðvitað þurfti einn óþekktu strákanna, Young Skywalker, að æla á gólfið þegar hann var að klæða sig í skóna. Ég var inni í herbergi að klæða mig í náttföt þannig að ég kom ekkert nálægt því að þrífa það upp sem var mér mjög mikill léttir en ég hins vegar fann mikla fýlu koma inn í herbergið okkar Arnórs. Ég hefði örugglega lamið drenginn eða eitthvað hefði ég verið frammi, svo pirruð var ég. En loksins voru allir farnir út, nema náttúrulega spænsku stelpurnar því þær ætluðu auðvitað að gista bara. Þær búa allar svo lengst í burtu að við gátum ekki látið þær taka lestina hvað þá leigubíl. 

Daginn eftir vöknuðum við öll frekar ógeðsleg og átum öll kókópöffs og drukkum kók:D Við reyndar þurftum að komast að því þegar við vöknuðum og vorum öll að pissa í okkur að klósettpappírinn var búinn í húsinu þannig að Arnór yndi skrapp útí búð og keypti það sem vantaði. Svo skelltum við Arnór okkur á kaffihús bæjarins, fengum okkur góðan morgunmat og skruppum niður í Chinatown og á Canalstreet og Broadway. Arnór verslaði sér nokkra hluti, skó, boli og jakka, en ég lét það vera að fá mér eitthvað þar sem ég á ekki einu sinni nóg pening til að fá mér að borða. Verð víst bara að svelta í einn dag í viðbót. 

En ég nenni ekki að skrifa meira!

-Ólöf

5 comments:

neinunn said...

Vá innilega til hamingju með trúlofunina!

-Steinunn (vinkona Höllu og Hildar)

Ásgerður Snævarr said...

hæ til hamingju með þetta.... hljómar æðislega og sjúklega rómó;)

Halla said...

Sammála með gaurana. Hvað meinarðu samt með óþægilegum stöðum?? Ekki þó óþægilegu staðirNIR?

Ólöf Helga Gunnarsdóttir said...

Óþægilegir staðir as in, rass, læri og fleira. Eða ég var allavega að taka eftir því á Camila.....hann var voða hrifinn af henni!!!:S

Unknown said...

Excuse me! Hvað á það að þýða að linka EKKI á bloggið okkar??? Þetta gengur notlega ekki lengur.....;)