Tuesday, September 16, 2008

Ný tölva

Þá er komið að því. Tölvan mín bilaði og ég er búin að vera í pirruðu skap síðan á fimmtidaginn útaf því. Það er fáránlegt hvað maður er háður þessum tækjum. En ég semsagt þarf að kaupa mér nýja tölvu. Ætla að fá Apple tölvu:D:D.....hlakka alveg soldið til að fá nýja tölvu. Hafði hugsað mér að skella mér á einn svartan. Sé bara hvað þetta kostar. Ætla allaveg að skella mér í Apple á eftir!
Það gengur allt miklu betur í skólanum. Maður er farinn að styrkjast helvíti mikið og ég finn alveg gríðarmun á mér. Er meira að segja í svörtu Diesel-buxunum mínum núna sem voru orðnar ALLTOF þröngar á mig áður neég fór út. Þannig að ég er nú bara frekar sátt með lífið eins og það er núna. Svo styttist í heimsóknin hans Arnórs. Ég get ekki beðið eftir að fá ástina mína til mín. Þetta er búið að vera ekkert smá erfitt svona lengi frá honum. Það er náttúrulega næstum því mánuður liðinn.
En já við fengum fyrsta gestinn okkar núna á sunnudaginn. Sandra, vinkona hennar Höllu, kom í heimsókn og var yfir nótt. Fór síðan aftur til baka á mánudeginum. Svo fer að styttast í að fleiri komi í heimsókn. Arnór, mamma hennar Hildar 15.október, mamma mín líklegast í nóvember og svo framvegis:D. Við verðum líka að fara að fylla aðeins uppí íbúðina okkar. Höfum ekkert fengið okkur neitt meira síðan bara þegar við fórum fyrst í IKEA og keyptum eldhúsborð og stóla. Mig langar rosalega að við fáum okkur einhvern lítinn sófa og sjónvarp auðvitað. Það er alveg fáránlegt samt hvað við sökum ekki sjónvarpsins meira. Gossip Girl og allt byrjað og við ekkert inní þessu. Frekar glatað! ´

Laugardaginn síðasta kom Ólöf í heimsókn að tékka á okkur hérna í Harlem. Kom í fyrsta skipti í íbúðina og leist bara helvíti vel á hana. Hún auðvitað tók með sér Bacardi romm með sér svo að við gætum nú loksins notað þessa hristara sem við eigum. Við blönduðum í nokkra Mojio, og auðvitað var ég barþjónninn, og það var unaður. Fengum líka annan gest upp til okkar. Buðum Bourbon að joina okkar í nokkra drykki og svo ætluðum við að færa okkur yfir til einhvers vinar hans sem að hans sögn átti Terrace með risastóru borði og fullt af stólum. Síðan þegar við mættum á staðinn þá voru bara hann, dóttir hans (sirka 19 ára) og einhver annar gaur inni í íbúðinni að reykja gras. Þetta var sko viðbjóðslegasta íbúð í geimi. Það var ekki mikið inni í henni, bara einn stór hornsófi, sófaborð og sjónvarp og svo borðstofuborð með stólum við. Svo spurðum við um þennan terrace og það var bara eitthvað pínulitlar svalir með einu litlu borði og einu skitnum stól. Við hlógum eins og ég veit ekki hvað þegar við komumst að því. En þetta var nú bara gaman þrátt fyrir ógeðslega íbúð. Sátum bara í chillinu að spjalla.

Svo á laugardaginn erum við stelpurnar að fara á MUGISON tónleikana sem VIP-gestir:D:D:D. Það er svona þegar maður þekkir rétta fólkið;).

En allaveg, við heyrumst þegar ég verð komin með nýja tölvu:D!!! GLEÐI!!

1 comment:

Anonymous said...

ÓOO mæ god......! VIP-gestir !!
Næææs..
en heyrðu er farin að sakna þín geðveikt mikið.
en btw ætlaru kannski bara að fá þér tölvu eins og mína? :P :D:D

kv.edda