Thursday, September 18, 2008

Taumlaus gleði

Þá er ég búin að fá mér nýja tölvu:D! Fékk mér svarta MacBook sem var reyndar í dýrari kantinum en ég er mjög ánægð með hana. Þarf svo bara að finna út hvernig ég get transferað upplýsingarnar á gömlu tölvunni inná nýju tölvuna. Ekki nóg með að ég er komin nýja tölvu heldur erum við að fara að fá internetið í íbúðina okkar. Þessi yndislega kona sem er húseigandinn hjálpaði okkur með þetta. Hún er svo frábær að ég er alveg í skýjunum yfir hvað við lentum í góðri íbúð. Þannig að það er endalaus gleði hjá okkur!!!

Reyndar er ekki alltaf gleði hjá okkur stelpunum. Í gær vorum við bara í chillinu heima, ég nýkomin úr sturtu og eitthvað, þegar við heyrðum allt í einu svona 4-5 hvelli sem hljómuðu eins og flugeldar. En svo þegar við kíktum út sáum við að allir sem voru úti höfðu hent sér í götuna og bakvið bíla og svona og þá föttuðum við að þetta voru líklegast byssuhljóð. Það er semsagt svona félagsblokk, á vegum ríkisins, á móti íbúðinni okkar sem kallast Lincoln Project og það eru víst svona Project útum allt hérna. Síðan myndast stundum rígar á milli porjecta. En málið var semsagt það að einhver skaut af byssu inni í þessu Projecti. Sem betur fer þá slasaðist enginn en við erum hins vegar semí smeykar núna. Erum reyndar mjög heppnar að við erum búnar að kynnast aðaljöxlunum hérna í hverfinu þannig að við ættum ekki að lenda í neinu veseni;). Svo var víst svona "Shoot out" eins og maður kallar það í sama projecti einhverja nóttina um daginn, við reyndar heyrðum ekkert í því en þetta er alveg semíbrútal hérna víst. Reyndar sagði Lauren (gamli ballettkennarinn á Íslandi) að hún hefði líka heyrt í svona og hún bjó á 74th street þegar hún bjó hérna þannig að þetta er víst bara New York.

Svo er frændi hans Arnórs, Biggi Mugison, að koma á morgun og við fáum að fara á Mugison tónleikana allar saman. Get ekki beðið.......búin að hugsa hverju ég ætli að fara í og svona:D! Svo fara allir að koma hægt og rólega. Held að Arnór sé næsti gesturinn, þó að ég viti ekki hvenær hann kemur, og svo er mamma Hildar væntanleg. Linda frænka Arnórs er líka að koma til NY þannig að ég hitti hana líklegast. Og Kristrún auðvitað. Mamma ætlar vonandi að koma í nóvember þannig að það er bara allt að gerast!!!!!

En nóg í dag, ætla að fara að skoða hvernig fítusa þessi tölva hefur uppá að bjóða!!;)

Ólöf

3 comments:

Unknown said...

Til hamingju með nýju tölvuna! Þú verður farin að ganga með nýjustu týpuna af Smith & Wessson áður en þú veist af. Kveðjur frá Þýskalandi.

Sif said...

Til hamingju með tölvuna;) Passið ykkur á ljótu kögglunum:S

Unknown said...

úúú.. öfund í gangi yfir að þú sért komin með nýja apple tölvu!!
En fariði nú varlega á þessum gangsta götum í kringum ykkur..

..kíktu svo á bloggið hjá mér og röggu hér úti í barce.. www.mardisogragga.bloggar.is

knús
Mardís