Ég er í stresssjokki hérna. Var að fara útaf heimabankanum mínum og tékka á genginu eins og ég geri alltaf og hvað sé ég.........132,57 KRÓNU DOLLARINN!!!!!!!!
Hvað er að gerast? Ég er í svo miklu sjokki sko. Launin mín frá sumrinu eru bara að fara í vaskinn yfir þessu andskotans gengisfalli. Það er sko eins gott að ríkisstjórnin eða hver það er sem getur reddað þessu fari að standa sig! Maður er í námi, fátækur námsmaður og þá gengur ekkert svona sko.

4 comments:
Voðalega ert þú miklu duglegri en hinar dömurnar að blogga! Hæfæv til þín.
En veistu, þótt að dollarinn sé kominn í milljón núna ertu samt heppnari að vera þarna úti því að það er huuundleiðinlegt á Íslandi núna. Allir svo niðurdregnir. Allt gegnsýrt af þessu rugli!!
haha sammála hildi kristínu!
en eins og ég er búin að segja við höllu mæti ég með brauð og smjör og við höldum festival :D
og btw... vantar þig ekki eitthvað heiman frá þér - ég verð með hálftómartöskur báðar leiðir haha þannig nóg af plássi! ;)
og já skv. flestum bankastofnunum geturðu andað léttar... alla veganna í smá stund :D
Slakaðu á, það er nú ekki eins og þú sért með erlend lán á bakinu - námsmenn örugglega bara best staddir núna. Njóttu lífsins! ;)
Post a Comment