Friday, October 17, 2008

17.október

Komin helgi aftur. Sem er alltaf ljúft. Mamma hennar Hildar kom í heimsókn til okkar á miðvikudagskvöldinu og verður fram á næsta miðvikudag. Alltaf gaman að fá gesti. Það sem er þó ekkert svo rosalega gleðilegt er að hann Arnór minn er að fara aftur til Íslands á mánudaginn þannig að ég hef bara 2 daga í viðbót með honum. Svo þarf maður að bíða í 2 mánuði og 3 daga þar til að ég fer til Íslands fyrir jólafríið. Það eru nú reyndar fleiri gestir að koma í heimsókn til okkar á næstunni. Gullið hún Kristrún ætlar að kíkja í heimsókn í næstu viku sem er ljúft, og við Halla ætlum að sýna henni borgina. Mála bæinn rauðan eins og maður segir. Ætlum að taka hana á fræga kaffihúsið og margt fleira skemmtilegt. Ekki nóg með að Kristrún ætlar að skoða fylgsnið okkar heldur ætlar Morin mín að koma í heimsókn 14.nóvember. Ég get ekki beðið eftir að fá hana mömmu mína til mín, eftir svona langa tíma. Maður verður nú pínu mömmubarn ef maður er svona lengi í burtu.

Í þessari viku fengum við nýjan jazzkennara sem heitir Mrs.Wong og við vorum búnar að heyra ýmislegt um hana. Ekki allt jákvætt skal ég segja ykkur. Konan mætir og ég var svoooo hrædd við hana sko. Svo byrjar hún að lesa upp og les upp Ólöf, eða Olaf eins og allir hérna segja, og ég segi henni að ég noti alltaf millinafnið mitt sem er Helga. Þá hreytir hún í mig:"I'm just reading what says in the book." Ég bara:"Yes, I know. I am just telling you." Þá talar hún við hópinn og segir í alveg rosalega dónalegum tón:"Oh, she's ju
st telling me." Sko annað hvort var hún á túr eða eitthvað í fyrsta tímanum eða bara í extra góðu skapi í gær. En hún var allaveg MIKLU skárri í gær en á þriðjudeginum. Vonum að hún hafi bara verið í vondu skapi því ég þoli ekki svona. Sérstaklega líka því að hún þekkir suma nemendurna og hún tekur þær svo fram fyrir alla aðra. Mér líður alltaf eins og að hún horfi bara framhjá mér. En því ætla ég að reyna að breyta með því að verða fabulous:D

Við stelpurnar erum búnar að sjá Miss J, eins og hún er alltaf kölluð uppí skóla, en það er Judith Jamison artistic director of the Alvin Ailey American Dance Theater. Ekta celeb á ferð og hér er mynd af henni svo þið fáið smá hugmynd um hver þett
a er. Þetta er án gríns svo ljúf kona. Hún bara heilsaði okkur á fullu og spurði hvernig við hefðum það og svo framvegis bara upp úr þurru því við vorum að labba út úr skólanum og hún stóð fyrir utan. Alveg æðislega indæl elska!


Ég er búin að redda mér flugmiða heim á klakann í desember. Bara svona til að vera heima hjá mömmsu og Arnóri og þeim öllum yfir jólin og svona. Ég semsagt flýg af stað Þorláksmessukvöld og lendi heima klukkan nákvæmlega 6:45 aðfangadagsmorgun. Þetta verða svo sannarlega spes jól hjá mér þetta árið. Voðalega ómerkilegar og ódýrar jólagjafir frá mér, alls ekki búast við neinu en ég geri mitt besta. Og svo að vera uppá flugvelli á aðfangadag verður mjög skrýtið. Finnst reyndar leiðinlegast við þetta að ég gef ekki skellt mér niður á Laugarveginn á Þorláksmessu og fá mér kakó með mömmu og systrum. En svona er lífið nú stundum. Flugmiðinn var svo andskoti dýr hefði ég komið bara heim degi fyrr. Svo verður flogið aftur út 11.janúar. Við Halla fengum aukaviku af jólafríi útaf dýrum flugmiðum. Indælisfólk þarna uppí skóla:D. 

  

En þetta er allt og sumt fyrir þessa vikuna. Og Hildur ég lofa að fara að senda þessi Victoria's Secret nærföt fyrir þig á morgun. Er alltaf að gleyma því:S Sorrý sys!


Sæl að sinni, Ólöf



2 comments:

Halla said...

Mammsan mín kemur bara ekki neitt!
Svekk á mig

Unknown said...

Færð þér bara heitt kakó með rommi á JFK áður en þú flýgur heim. ;)