Þegar ég síðan kom heim þá reyndar fékk ég aftur svona heiftarlega í magann, tók Alka Seltzer (sem bara virkar helvíti vel) og horfði á Little miss Sunshine með Arnóri. Fór svo bara snemma í háttinn. En hvað gerist þegar ég vakna í morgun. Ég er að drepast í hálsinum og er stíf í bakinu, alveg frá hnakkanum og alveg niður allt bakið. Get ekki snúið mér og þurfti þar af leiðandi að horfa á í dag. Ógeðslega pirruð útaf þessu. Það er svo leiðinlegt að horfa á tíma, og mér líður alltaf eins og að ég sé bara að aumingjast með því að horfa á en svo náttúrulega finn ég strax af hverju ég er ekki með þegar ég hreyfi mig þannig að það er kannski bara ágætt að leyfa þessu að hverfa svo ég geti verið góð á morgun. Ég VERÐ að taka þátt á morgun. Ballett með Ruiz og líka síðasti Jazztíminn með Mr. Mann.
Það er mjög leiðinlegt að hann sé að fara, mun sakna hans mjög. Erum líka að fara að fá einhverja konu í staðinn sem heitir Miss Wong og ég er búin að heyra svo mikið um hversu klikkuð hún sé. Þetta verður mjög spennandi.
Framundan er líka löng helgi og ég ætla svo sannarlega að vera frísk þá þar sem við Arnór ætlum að gera eitthvað skemmtilegt. Líklegast að fara út að borða. Hlakka mjöööööög til!!!:D

1 comment:
Hvað, er bara ALLTAF löng helgi hjá ykkur?? Hvers konar er þetta eiginlega!? ;)
Post a Comment