Svo þegar komið var inní bíósalinnn, með popp og gos í hendi auðvitað, þá tekur Halla eftir einhverri gellu sem sat við hliðina á henni sem var ein á myndinni. Allt í lagi með það en síðan þegar Ludacris kemur fram í myndinni þá allt í einu heyrast einhver kynlífshljóð upp úr gellunni og kyssihljóð og eitthvað slíkt. Þá var hún víst bara sjúklega heit fyrir honum og talaði varla um annað en hvað hann var alveg ótrúlega heitur. Ég lít eitthvað betur á hana og sé að hún heldur á brúnu bréfpoka með flösku í. Það þurfti ekki að segja mér tvisvar að þetta var klárlega áfengur drykkur, einmitt líka miðað við hvernig hún var að láta. Voðalega fyndið samt að fara ein í bíó með áfengi, fær semí respect út á það.
Þetta er ekki allt. Það sat gaur fyrir framan okkur, einhver svona spanjóla gæi. Arnór sat beint fyrir aftan sætið hans og apparently var hann alltaf að reka fæturna í stólinn hans. Það endaði með því að hann án gríns stóð upp og fór að segja okkur að hætta þessum látum að hann væri alveg að verða brjálaður. Við skildum ekkert í þessu því að Arnór var alveg kyrr eiginlega alla myndina, rakst kannski eitthvað örlítið. Þetta var pott þétt svona gaur sem þarf svo sannarlega á Anger Management að halda. Hann var líka með dóttur sinni, ekki eldri en 10 ára, og konu sinni á myndinni. Þessi mynd er klárlega ekki fyrir börn yngri en 10 ára.
Við Arnór fundum okkur svo sannarlega í The Village í dag. Ætlum alveg pott þétt að flytja þangað næst. Þó að við þurfum að búa í einhverri holu þá verður þetta heimili okkar. Við fundum okkur alveg fullt af skemmtilegum marköðum þarna í kring til að skoða fullt af dóteríi. Arnór skellti sér á tvenn sólgleraugu og einhverja boli. Helvíti góð kaup!
Okkur er boðið í eitthvað partý sem er í kvöld. Við Arnór og Halla ætlum líklega að skella okkur. Maður hefur aldrei fengið að fara í almennilegt partý, alltaf allt bannað innan f*** 21 árs. En svona er lífið.
Heyrumst seinna, kiss kiss!

1 comment:
þú verður að fara að setja myndir inná :O þetta gegnur ekki.. og btw UGG skór :D:D (L)(L)
Post a Comment