Sunday, October 5, 2008

Mig langar...

Við Halla tókum röltið á Houston street í dag og vá hvað ég er ÁSTFANGIN af þessu hverfi þarna hjá Houston street. Mig langar svo mikið að finna mér íbúð þar eftir ár þegar leigusamningurinn á þessari endar. Ég er svo klárlega búin að ákveða að ég ætli að búa þarna, alveg sama þó það sé bara einhver hola en staðsetningin er bara frábær. Það er allt þarna. Broadway rétt hjá, Urban Outfitters í göngufæri, besta kaffihús í geimi (The Corner Cafe) með mangó-créme brulé á næsta horni og ég veit ekki hvað og hvað. Löbbuðum líka framhjá svona "flóamarkaði" hálfgerðum sem ég myndi aldrei stoppa hjá en svo bara fann ég fullt af stöffi. Sá klikkað flott stígvél sem kostuðu örugglega ótrúlega lítið sem mig langaði svooo mikið í en það var stelpa sem var sko án gríns svona tveimur sekúndum á undan mér að máta þau og vitiði hvað hún keypti sér þau. Ég var brjáluð því svo sagði stelpan sem var að selja þau að hún væri búin að vera með þau svo lengi en enginn gat keypt þau því allir voru með of stóra kálfa í þau. ÉG ER MEÐ ALVEG ÓTRÚLEGA GRANNA KÁLFA og á mjög erfitt með að finna stígvél sem passa. En ég verð bara að reyna að sætta mig við þetta. Keypti svart-hvíta ljósmynd/plakat af Ray Charles og alveg ótrúlega fallega eyrnalokka þannig að ég gerði nú alveg góð kaup. Við Halla fórum líka í Urban og ég er svoleiðis að elska þessa búð og hún er svo hættuleg því það er alltaf eitthvað sem ég finn í henni og hún er svo sannarlega ekki ódýr. En ég keypti bara tvo kjóla, fyrir Aldísi systur, þannig að ég var ekki að borga;)

Í gærkvöldi var smá djamm á okkur og þið getið séð myndirnar inná Facebook, setti líka inn fyndnasta myndband ever, af Höllu að reyna við að koma skeið af kanil niður;) Mjög fyndið!!!
Svo er skóli aftur á morgun. Erum að fara í Theater Arts þar sem við þurfum að syngja:S sem er minn veikleiki skal ég segja ykkur og ég HATA þetta svo mikið. En það eru bara tveir tímar eftir af því og svo fáum við pródúsent, rithöfund og fleiri til okkar. Voða spennt yfir því. En ég get hlakkað til helgarinn næstu því hún verður svo sannarlega löng. Þriggja daga löng helgi út af Columbus day á mánudeginum. Við Arnór ætlum að fara út að borða og gera eitthvað rómó. Hlakka til!!!!

:D Ólöf

2 comments:

Unknown said...

Er ekki hægt að fá að sjá myndbönd úr þessum söngtímum?

Unknown said...

Hahahha, þú getur bara tekið lagið sem þú söngst á sínum tíma í Való-leikritinu, það muna nú allir eftir því!! ;)