Í gærkvöldi hins vegar þá ákváðum við að halda almennilegt partý fyrir hann Victor okkar. Og bjóða fólkinu að koma alla leið til okkar. Við sögðum stelpunum að koma um 6 leytið svo að þegar Victor mundi koma rúmlega 7 þá yrði það "Surprise" þegar hann kæmi. Því hann vissi ekkert um að við ætluðum að halda partý fyrir hann. Hann hélt bara að hann væri að koma í lítinn hitting heima hjá okkur. Ég bakaði köku og allt fyrir hann meira að segja. Klukkan er orðin 7 og við ennþá að bíða eftir stelpunum sem er ekki enn komnar. Við vorum byrjaðar að fá okkur bjórinn okkar þannig að það var ekki langt í að við yrðum mjög skrautlegar. Klukkan 8 síðan þegar þau voru ekki enn komin og við farnar að dansa einar hérna þá fór ég í kökuna. Við Halla byrjuðum á henni, ég bara gat ekki beðið lengur. Ólöf Ruth kom síðan loksins, fyrsti gesturinn, klukkan 9 minnir mig. Þá var sko partý. Vorum svo glaðar að það væri loksins einhver komin til okkar;). Tatiana og Camille, herbergisfélagi hennar, komu síðan ekki mikið seinna. Kannski svona hálf10 þannig að þær voru komnar rétt á undan Victor og Nehuian. Þegar þau komu þá hrópuðum við "SURPRISE" og Victor, þetta yndi sem hann er, táraðist næstum hann var svo glaður. Þetta var bara helvíti gott partý hjá okkur, buðum meira að segja frönsku gaurunum sem búa á móti okkur að koma í partýið. Svo allt í einu birtist einhvern Maurice sem sagðist búa fyrir neðan okkur og vildi endilega vera í partýinu, heyrði öll lætin, hehe:D. Hann var bara ágætur að tala við. Eftir að allir voru farnir voru það bara ég, Ólöf, Victor og þessi Maurice eftir og við vorum að tala um mismunandi lönd og kynþætti. Við Ólöf vorum í rauninni að segja þeim bara ALLT um Ísland.
Fórum ekki að sofa fyrr en klukkan að verða 4. Og hvað geri ég; ég sef í fjóra tíma, vakna klukkan 8, sem ég geri núna alltaf um helgar, og get ekki sofið meira. Ég sit hérna ein frammi í eldhúsi að blogga þar sem ég hef ekkert annað að gera. Ólöf liggur uppí rúminu mínu sofandi þannig að ég get ekki reynt að sofna yfir Friends sem hefur yfirleitt virkað, þannig að ég þarf bara að sætta mig við að ég geti ekki sofið meira. Verð bara haugur í dag!!

No comments:
Post a Comment