Saturday, November 1, 2008

Hot Yoga og Halloween

Jæja þá er ég búin að fara í 2 tíma í Bikram Yoga. Þetta er mesti killer sem ég hef prófað á ævinni. Þetta er semsagt jógatími í gufubaði, eða reyndar saunu því það er enginn gufa, bara hiti og raki. Gufan er rúmar 40 gráður heit og rakinn er um 40%. Síðan erum við að gera jógastöður í þessu gríðarlega hita. Fólk sem hefur hlaupið maraþonið segir að þetta sé erfiðara en það. Maður byrjar að svitna svakalega áður en tíminn byrjar. Það er ekki hægt að vera í fötum varla, ég er alltaf bara í stuttum stuttbuxum og íþróttatopp. Maður svitnar ALLS STAÐAR og það er eins og maður hafi farið í sturtu þegar maður er búinn. Allt verður rennandi blautt og þess vegna þarf að hafa handklæði á jógadýnunum. Út af hitanum sem maður er í í einn og hálfan tíma, og maður er að gera erfiðar æfingar, þá finnur maður fyrir gríðarlega mikilli ógleði og svima stundum. Svo fær maður hausverk fyrustu tímana útaf blóðflæðinu og konan sem kennir þetta sagði að maður er að reyna á ALLA líkamshluta, líka innri líffærin. Svo er eitt svo skrýtið að ég fann fyrir kulda í vöðvunum þegar þeir voru að vinna líklegast útaf því að blóðið er kaldara en hitinn í herberginu. Rosalega skrýtin tilfinning. En ég ætla án gríns að halda þessu áfram, allavega í 30 daga því það var byrjendatilboðið. 30 dagar fyrir 30$. Annað jákvætt við þetta er að það er rosalega mikið af teygjum í þessu og maður hitnar svo að maður liðkast alveg allsvakalega við að fara í þessa tíma. Síðan á maður víst að grennast og verða rosalega flottur sem er aldrei neikvætt:D.



Það var Halloween hérna í Ameríkunni í gærkvöldi og við Íslendingarnir, ásamt Ólöfu Ruth, fórum niður í bæ til að tékka á skrúðgöngunni. Þetta er alveg rosalega extreme. Þessir búningar sem fólk er í eru alveg rosalegir. Fáránlegustu hlutir sem fólk lætur sér detta í hug hérna. Sáum einn t.d. sem var bara glas. Eða hann semsagt var þakinn í glösum, glerglösum notabene, og var síðan með hatt allur í glösum og svo kampavínsflaska í miðjunni. Mjög fyndið.
En sko þetta er án gríns svona hátíð sem er bara afsökun fyrir stelpur til að klæðast slutty fötum. Við stelpurnar vorum að velta fyrir okkur að fara í búning og fórum í búningabúð sem er rétt hjá skólanum. Þetta var hryllingur. Allir búningarnir fyrir stelpur voru slutty þetta og sexy hitt. Það var búið að gera allt kynþokkafullt. Hjúkkur, löggur, kisur, kanínur, Lísa í Undralandi, Kínverji, Mary Antoinette sá ég líka einhversstaðar (snípstuttur kjóll). Þetta var svakalegt. Og það voru líka allar stelpur/konur á götunum í svona slutty fötum. Skipti engu máli hvort þær voru feitar eða mjóar eða stórar eða litlar. Þetta var mjög spes. 
Svo á leiðinni heim í lestinni þá voru einhverjir krakkar, kannski aðeins eldri en við og blindfull eitthvað að grínast. Fóru svo að tala við okkur og spyrja hvaðan við værum. Þegar við sögðum þeim hvaðan við værum þá fannst þeim það alveg æðislegt og einn þeirra spurði okkur hvort við þekktum Thor í Julliard skólanum. Við skildum ekkert hvað hann var að tala um en svo föttuðum við náttúrulega að Þorvaldur Davíð er þar og þau voru svo ótrúlega æst þegar við sögðumst þekkja hann. Það var ótrúlega fyndið. 

Hommar sem hórur!!

En ég hugsa að ég ætli að fara að drífa mig í föt. Ligg ennþá uppí rúmi í náttfötunum og klukkan orðin hálf1 hérna. Ætli maður skelli sér í jóga á eftir?!;)

5 comments:

Anonymous said...

Get ekki skilið eftir komment

Anonymous said...

hahahahahaha.. gaurinn í borat búningnum, en vá hvað mig langar í þetta hot jóga, ég er að deyja hérna í fitu og e-h þannig drasli. vá hvað ég hlakka til að fá þig um jólin <33

- þín lang besta systir, Edda <33333333
Lovjú

Anonymous said...

Jú það tókst, ótrúlega skrautlegt fólk!!!

Anonymous said...

hey sry gerði óvart anonymus, kann ekki að gera edda :S

Ólöf Helga Gunnarsdóttir said...

Þú velur Open ID held ég og þá geturðu skrifað nafnið þitt!:D