Það var Halloween hérna í Ameríkunni í gærkvöldi og við Íslendingarnir, ásamt Ólöfu Ruth, fórum niður í bæ til að tékka á skrúðgöngunni. Þetta er alveg rosalega extreme. Þessir búningar sem fólk er í eru alveg rosalegir. Fáránlegustu hlutir sem fólk lætur sér detta í hug hérna. Sáum einn t.d. sem var bara glas. Eða hann semsagt var þakinn í glösum, glerglösum notabene, og var síðan með hatt allur í glösum og svo kampavínsflaska í miðjunni. Mjög fyndið.
En sko þetta er án gríns svona hátíð sem er bara afsökun fyrir stelpur til að klæðast slutty fötum. Við stelpurnar vorum að velta fyrir okkur að fara í búning og fórum í búningabúð sem er rétt hjá skólanum. Þetta var hryllingur. Allir búningarnir fyrir stelpur voru slutty þetta og sexy hitt. Það var búið að gera allt kynþokkafullt. Hjúkkur, löggur, kisur, kanínur, Lísa í Undralandi, Kínverji, Mary Antoinette sá ég líka einhversstaðar (snípstuttur kjóll). Þetta var svakalegt. Og það voru líka allar stelpur/konur á götunum í svona slutty fötum. Skipti engu máli hvort þær voru feitar eða mjóar eða stórar eða litlar. Þetta var mjög spes.
Svo á leiðinni heim í lestinni þá voru einhverjir krakkar, kannski aðeins eldri en við og blindfull eitthvað að grínast. Fóru svo að tala við okkur og spyrja hvaðan við værum. Þegar við sögðum þeim hvaðan við værum þá fannst þeim það alveg æðislegt og einn þeirra spurði okkur hvort við þekktum Thor í Julliard skólanum. Við skildum ekkert hvað hann var að tala um en svo föttuðum við náttúrulega að Þorvaldur Davíð er þar og þau voru svo ótrúlega æst þegar við sögðumst þekkja hann. Það var ótrúlega fyndið.
Hommar sem hórur!!
En ég hugsa að ég ætli að fara að drífa mig í föt. Ligg ennþá uppí rúmi í náttfötunum og klukkan orðin hálf1 hérna. Ætli maður skelli sér í jóga á eftir?!;)

5 comments:
Get ekki skilið eftir komment
hahahahahaha.. gaurinn í borat búningnum, en vá hvað mig langar í þetta hot jóga, ég er að deyja hérna í fitu og e-h þannig drasli. vá hvað ég hlakka til að fá þig um jólin <33
- þín lang besta systir, Edda <33333333
Lovjú
Jú það tókst, ótrúlega skrautlegt fólk!!!
hey sry gerði óvart anonymus, kann ekki að gera edda :S
Þú velur Open ID held ég og þá geturðu skrifað nafnið þitt!:D
Post a Comment