Tuesday, November 18, 2008

Mamma í heimsókn

Þá er mamma farin aftur útá flugvöll eftir þessa fjögurra daga dvöl hennar hérna í Harlem. Á föstudeginum fór ég og sótti hana útá flugvöll, tók bara lestina. Það var alveg ótrúlega gaman að sjá hana eftir svona langan tíma og við tókum lestina síðan heim. Klukkan var orðin hálf10 þegar við vorum loksins komnar heim. Ég var þreytt eftir skólann og mamma var ennþá á íslenskum tíma þannig að við drifum okkur bara snemma í rúmið og steinrotuðumst. Daginn eftir vaknaði mamma klukkan svona 5 og svo vaknaði ég um 7 leytið. Þar sem við ætluðum okkur að gera svo mikið saman þá ákváðum við að drífa okkur á fætur um 8 og fórum og fengum okkur morgunmat, beyglur með cream cheese, á kaffihúsinu okkar góða. Eftir það langaði að fara með hana í Greenwich Village, uppáhaldsstaðinn minn í New York. Við röltum þar um og auðvitað hittum við á fullt af ríkisbubba búðum, Dolce and Gabbana, DKNY og fleiri. Við skoðuðum nú það sem var til og það var bara alls ekki slæmt. Sáum líka alveg fullt af ungbarnafatabúðum, alveg ótrúlega sæt föt. Ég ætla svo sannarlega að versla eitthvað þarna í mars;). Laugardagurinn fór meira og minna í það að labba um Greenwich Village og skoða svæðið. Vorum síðan komnar heim um 4 til þess að hafa okkur til fyrir kvöldið þar sem við vorum allar fjórar að fara saman á Nobu. Við gerðum okkur allar svaka fínar og tókum lestina klukkan hálf6 niður á Franklin street. Nobu er án gríns með þeim betri veitingarstöðum sem ég hef farið á. Ég hélt án gríns ekki að mér gæti þótt fiskréttir svona ótrúlega góðir. Við pöntuðum okkur bara fjóra kalda rétti og fjóra heita rétti til að hafa fyrir borðið þannig að allir gætu smakkað allt. Svo fengum við mamma og Halla okkur eina hvítvínsflösku saman sem skemmdi ekki fyrir stemningunni;). Það eru víst margir celebar sem koma á þennan veitingastað og það er til sérstakt VIP herbergi þar þannig að maður var nú alltaf með augun opin. Svo var ég búin að fylgjast með manni sem sat fyrir aftan Höllu í soldinn tíma. Sagði síðan að mér fyndist hann alveg rosalega líkur Conan O'Brien og viti menn, þetta var bara Konninn;). Hann er svo kjánalegur þessi maður, sat alveg eins og hann situr alltaf í þáttunum hans með þetta hræðilega Grease-like hár. En gaman að hafa setið við hliðiná celeb. 
Um nóttina vakna ég síðan með þessa svakalegu magapínu, maginn minn var alveg útþaninn. Ég gat ekki legið kyrr og þurfti því að standa upp. Fékk mér vatn að drekka og brjóstsviðatöflur hjá Hildi. Var búin að vera vakandi í svona hálftíma þegar ég var orðin alveg ótrúlega þreytt og ákvað að reyna að sofna. Ég var ný búin að leggjast niður þegar ég bara finn allt koma upp. Þá bara fór maturinn svona rosalega illa í mig. Borðaði rækjur aftur í gærkvöldi og fékk þessa sömu magapínu þannig að hver veit nema að ég sé bara komin með ofnæmi fyrir rækjum, sem er ekki gaman. 

Á sunnudeginum vöknuðum við síðan aftur fyrir allar aldire þar sem mamma var enn á íslenskum tíma. Fórum út klukkan 9 til að fá okkur aftur morgunmat á kaffihúsinu. Drifum okkur síðan niður í bæ til að kíkja á frelsisstyttuna. Ég fór með mömmu í South Ferry (er núna búin að fara þrisvar í þessa andsk... ferju). Síðan röltum við á Southstreet Seaport og skoðuðum í Abercrombie, sem er ennþá svona alveg ótrúlega hávær og dimm búð. Mér finnst alltaf jafnlei
ðinlegt að koma í þessa búð en mamma vildi endilega kaupa eitthvað þar fyrir stelpurnar þannig að ég lét mig hafa það. Tókum við síðan lestina uppá Prince Street til að fara í Urban Outfitters og fleiri búðir. Fórum líka á Corner Café, góða kaffihúsið á horninu á Bleecker og Broadway, og það stóð fyrir sínu eins og alltaf. Mamma verslaði handa mér kjól og bol í Urban sem var ekki slæmt. Fórum síðan í Duane Reade og það er alveg ótrúlegt hvað maður getur 
hangið lengi í þessum drugstores. Við vorum síðan bara eiginlega allt of seinar að fara heim því við vorum að fara á Cirque Du Soleil sýningu um kvöldið. Ég var alveg á því að sýningin byrjaði 7.30 og svo þegar við komum heim klukkan 6 þá kíki ég á miðana aftur og þá sé ég að sýningin byrjar 7. Þá skellum við okkur í föt og hlaupum út. 
Erum komnar út rétt fyrir hálf7 og reynum að ná okkur í leigubíl á Fifth avenue. Ég rétti svona upp hendina og þá stoppar svona hvítur bíll. Þeir eru líka til svartir og erum útum allt hérna í NY og apparently eru leigubílar. Ég hoppa þá inní hann og tek mömmu með. Segi svo við hann "Madison Square Garden" og hann spyr hvað ég vilji borga mikið fyrir það. Ég varð þá pínu hrædd og sagðist bara vilja fara út. Mamma tekur í hurðina og hún er læst. Ég segi við manninn mjög hortugt "Please open the door". Var sko orðin sjúklega hrædd um að hann ætlaði ekki að hleypa okkur út. Svo aflæsir hann hurðunum og við drífum okkur út. Náðum á endanum í gulan alvöru leigubíl;) sem keyrði okkur á Madison Square Garden fyrir 17 dollara. Við rétt náðum á sýninguna í tæka tíð. Þetta var bara þokkalega skemmtileg sýning. Var reyndar bara svona fjöl
skyldusýning/barnasýning en það var gaman að sjá þetta. Drifum við okkur svo bara heim og í háttinn, enda búinn að vera langur dagur hjá okkur.

Í gær kom mamma með uppí skóla til að horfa á Horton tímann sem Myers kennir okkur. Ég var svo spennt að vita hvað henni fyndist um þessa tíma og jú henni fannst bara rosalega gaman að horfa á þetta. Hittumst við síðan í hléinu mínu og fórum á Columbus Circle til að fara í Williams Sonoma (alveg frábær búð) og svo í Whole Foods. Það var svoooo mikið til af girnilegu Thanksgiving stöffi bæði í Williams Sonoma og Whole Foods. Ég kíki nú eflaust á þær búðir í næstu viku þar sem við ætlum að reyna að cooka eina kalkúnamáltíð fyrir okkur. Hafa þetta soldið hátíðlegt. Á leið minni til baka uppí skóla verð ég síðan vitni að því að verið er að taka upp Law and Order þætti, ekki slæmt. Sá bara allt heila crewið;).
Eftir skóla í gær fórum við mamma síðan á Top of the Rock til að skoða útsýnið yfir New York. Það var alveg ótrúlega flott að sjá borgina svona alla upplýsta, brjálað mikið af ljósum. Áður en við fórum á Top of the Rock fórum við og fengum okkur að borða á Bubba Gump á T
imes Square. Það var nú ekkert spes en allt í lagi svosem. Eftir þessa svaka fínu sjávarrétti á Nobu er allt annað frekar glatað;).

Í dag var mamma svona að klára það sem hún ætlaði að gera. Fór í Victoria's Secret og American Eagle aftur og verslaði soldið meira. Síðan hittumst við í hléinu mínu heima til að sækja ferðatöskuna hennar mömmu. Fórum svo niður í bæ um hálf2 og skoðuðum aðeins meira á Columbus Circle. Mamma fór í fótsnyrtingu og ég fór í jazztíma kl.3. Eftir tímann minn þurftum við síðan að drífa okkur út á flugvöll þar sem mamma var að fara aftur heim:(. Það er svo erfitt að fara alltaf svona út á flugvöll og vera svo ekkert að fara neitt, þannig að ég er á pínu bömmer hérna. Ætla bara að horfa á eitthvað skemmtilegt til að hressa mig við. Þetta var allavega allt í allt alveg rosalega skemmtileg heimsókn frá henni mömmu og ég hlakka eigi
nlega ennþá meira til að koma heim núna. Tíminn líður nú svo hratt hérna að þessar 5 vikur klárast eins og skot.
Skýt inn nokkrum myndum af dvölinni:D


   Ég í Greenwich Village
Með mömmu hérna fyrir neðan
Mamma að borða í Greenwich Village
Við saman á Nobu, sáttar með lífið!
Sjálfur Conan


3 comments:

Unknown said...

Myndin af Conan fer audvitad beint i sed&heyrt undir fyrirsögninni: "Islenskir dansarar i New York borda med Conan O'Brien".

Unknown said...

Hvað er þetta með andsk.. ferjuna? Nokkuð góð mynd af okkur saman
Kv. M

Arnór og Ólöf said...

Nei segi bara svona;) Þetta er nú ekki beint það skemmtilegasta sem maður gerir og að fara þrisvar er held ég alveg nóg:D Þrátt fyrir að það hafi náttúrulega verið alveg rosalega skemmtilegt með þér mamma mín:*