Wednesday, November 12, 2008

Rúmar 5 vikur

Ligg uppí rúmi og ætti að vera farin að sofa þar sem ég er alveg ótrúlega þreytt. Vorum að koma heim eftir að hafa fengið heimsókn frá henni Lilju Rúriksdóttur, vinkonu okkar úr Listdansskólanum. Við röltum með henni á lestarstöðina þar sem klukkan er orðin margt og þetta er nú einu sinni Harlem;). 
Þannig er nú það að hún býr hérna líka og er sjálf í dansnámi, eins og við, en hún er í Joffrey ballettskólanum. Það tók okkur nákvæmlega 2 mánuði og 3 vikur að finna okkur loksins tíma til að hittast, maður er nú svo busy. Það var bara alveg rosalega gaman að fá hana í heimsókn. Töluðum um heima og geima við hana og hana langar bara alveg rosalega að koma í Alvin Ailey, ekki slæmt (maður verður nú að auglýsa skólann sinn). Við ætlum að bjóða henni að koma einn daginn og skoða skólann, kannski bara að taka tíma með okkur;). 

Á mánudeginum fór ég aftur í jóga, eftir vikupásu. Ég var alveg ótrúlega löt í síðustu viku. Var alltaf að finna mér afsakanir til að fara ekki;). En nú er ég byrjuð aftur, alveg á fullu. Ætlaði mér nú að fara í kvöld en þar sem við höfðum boðið henni Lilju að koma í heimsókn þá þurfti jógað að bíða. Tíminn á mánudaginn var alveg rosalega léttur fannst mér. Er alveg rosalega sátt með sjálfa mig núna, því þetta voru svo miklir killer tímar en maður verður bara að vera þolinmóður. Núna finnst mér BARA gott og þægilegt að fara. Svo dreg ég mömmsu með mér í þetta á mánudeginum svona til að leyfa henni að þjást með mér. Má ekki láta hana koma í heimsókn án þess að þjást pínu;). 
Mamma er semsagt að koma til landsins, Ameríku, á föstudagskvöldinu klukkan 18:10 New York time. Ég er því miður í skólanum til 17:50 en ég ætla að reyna að laumast úr tíma aðeins fyrr og taka lestina til að sækja elskuna. Kem sveitt og sæt að sækja hana, hehe. 
Eg hlakka svo óheyrilega mikið til að fá mömmu mína til mín. Við ætlum að gera fullt af stöffi saman. Ég pantaði borð fyrir fjóra (ég, mamma, Hildur og Halla) á Nobu, fræga japanska staðnum. Þurfti að panta mánuð fram í tímann en ég hlakka alveg ótrúlega til að fara. Svo ætlum við að skella okkur á Cirque du Soleil á sunnudeginum sem ég get ekki beðið eftir að sjá. Þetta verður svo sannarlega ævintýr að fá hana mömmsu. 
Sakna allra heima svo rooosalega mikið og það er svo gott að fá einhvern til sín. Eftir að Arnór fór hefur mér fundist ég aftur vera hálf manneskja og vonandi getur mamma hjálpað mér að láta tímann líða hratt. Náttúrulega bara rúmar 5 vikur þar til að ég lendi á Keflavíkurflugvelli, á aðfangadagsmorgun:D. Bara gleði þegar ég hugsa um það!!

En jæja, þá ætla ég að fara að lúra. Langur dagur framundan. Ég er í skólanum til hálf5. Ætla í jóga og þarf síðan að taka til, skúra, þvo þvott og ég veit ekki hvað og hvað. Gangi mér vel!

- Ólöf


Ég og mamma á útskriftinni minni




2 comments:

Unknown said...

Jæja fröken, hættu nú að telja niður og hugsa um heimþrá og njóttu þess að búa í New York! :)

Halla said...

hahahah byrjuð í yoga á fullu?
ha humm...