Ég sit á kaffihúsinu einn laugardagsmorgun eins og svo oft áður. Fékk mér Cappuccino og blueberry beyglu með rjómaosti. Bragðast bara helvíti vel. Á eftir er ég að fara að vinna sem sjálfboðaliði á sýningu með Ailey flokknum. Skólinn/flokkurinn er 50 ára gamall og því eru sýningar á fullu í gangi frá síðasta 3.des til 4.jan. Nemendur skólans voru beðnir að bjóða sig fram í að vinna í búðinni á sýningum og selja boli og plaköt og fleira. Við stelpurnar ákváðum að bjóða okkur fram og ég var að vinna á fimmtudeginum í fyrsta sinn. Þetta var bara mjög skemmtilegt. Alveg brjálað mikið af fólki að kaupa og allir frekar dónalegir. En maður verður bara að brosa og halda áfram. Það besta við þetta er að við fengum að sjá sýninguna frítt og þetta var svooooo flott. Ég get varla lýst því hvað þetta var flott. Þessi flokkur er með þeim betri flokkum. Verkin eftir Alvin Ailey eru alveg breathtaking (afsaka slettur). Revelations eftir Ailey er held ég bara eitt af mínum uppáhaldsdansverkum. Ég var með gæsahúð allan tímann. Ég er að fara á aðra sýninguna mína á eftir, hún byrjar klukkan 2. Ég hlakka mjög til að fá að sjá meira. Þetta verða 6 sýningar sem ég fer á og það er ótrúlega gaman að hafa eitthvað annað að gera en að hanga heima þegar maður er ekki í skólanum.

Skilaði verkefnunum mínum í gær. Þau voru nú bara 2 en maður tók sér nú alveg góðan tíma í að klára þetta. Skrifaði ritgerð fyrir Body Conditioning og kláraði hana í no time. Í gærmorgun ætlaði ég síðan að prenta hana út í hreinsun sem er á móti skólanum. Nema hvað að tölvan gat ekki opnað ritgerðina því hún var í eitthvað vitlausu formati. Þá þurfti ég að fara alla leið heim aftur til að vista ritgerðina á öðru formati, senda mér hana á póstinum til að geta síðan loksins prentað þetta út. Missti af Hortontíma útaf þessu tölvuveseni en ég er heppin að vera með svona æðislegan kennara eins og Myers því hann afsakaði mig og sagði að þetta væri allt í lagi. Á endanum gat ég loksins prentað þetta út og skilaði því á réttum tíma.
Jæja þá þarf ég að fara að drífa mig uppí leikhús;) Sjáumst eftir 18 daga!
- Ólöf

3 comments:
Hér er komment. Hlakka ótrúúúúlega til að hittast eftir 2 vikur. :D
:D:D Oh mííí gooooood ég líka!!!!
Hæ Ólöf mín! Rosa gaman að lesa bloggin frá þér! En vá hvað ég er sammála þér hvað þetta er búið að vera fljótt að líða...shit. Finnst svo stutt síðan þú fórst út. Vonandi sé ég þig eitthvað þegar þú kemur til landsins. Lovepove, Sunna.
Post a Comment