Sunday, December 14, 2008

Stutt og laggott

Sunnudagur! Þetta er bara næst síðasti sunnudagurinn minn hérna fyrir jól. Voðalega hljómar það vel! Síðan eru 5 skóladagar eftir sem er ekki neitt, þessi vika á eftir að líða eins og skot. 

Í næstu viku fáum við einkunnirnar okkar, eða evaluations eins og þetta er kallað. Er ekki alveg viss hvort við fáum alveg einkunnir, kannski eru þetta bara umsagnir frá kennurunum. Er mjög spennt að sjá hvernig þetta verður. Svo veit maður líka ekkert hvað kennurunum finnst um mann, svona fyrsta veturinn. 

Heyrðu oj, í síðustu viku vorum við að labba á lestarstöðina til að fara í skólann og hvað haldiði að við sjáum á gangstéttinni, dauðan kött. Hann lá þarna bara steindauður. Þetta var frekar ógeðslegt. Síðan á leiðinni heim sjáum við köttinn þarna aftur. Hann lá þarna í svona 3 daga allavega. Frekar viðbjóðslegt. 
Netið okkar er eitthvað að bregðast okkur allt í einu. Á föstudeginum þá komumst við ekki á netið þannig að ég hringi í þetta fólk þarna hjá Time Warner í hádeginu. Ég náði þar af leiðandi ekkert að borða almennilega því ég var í símanum í rúman hálftíma. Kostaði mig rúma 3 dollara að tala í símann, óþolandi. Allavega þá byrja ég á að tala við einhvern símsvara. Bandaríkjamenn halda að þeir séu svo "sniðugir" að hafa svona símsvara til að hjálpa manni. Óþolandi, þegar maður vill bara fá að tala við einhvern. Þessi símsvari gat náttúrulega ekkert hjálpað mér eftir örugglega korter í símanum. Loksins fæ ég að tala við einhvern sem segir mér síðan eftir að hafa gert það sama og símsvarinn í korter að modemið mitt væri bilað og ég þurfi og fara og fá nýtt. Allt í lagi með það, við Halla skreppum eftir skóla og fáum nýtt. Þannig séð bara þokkalega góð þjónusta, þurftum ekkert að borga aukalega fyrir þetta. En þegar heim var komið var ennþá ekki komist á netið og þá var víst einhver service interruption á okkar svæði, Bögg. Við förum þá að sofa án alls nets. Daginn eftir vakna ég tilbúin að komast á netið og ekkert gerist. Hringi ég þá aftur, borga aftur 3 dollara fyrir það símtal og þá var vesenið víst það að ég hafði óvart ýtt á reset takkann á routerinum þegar ég var að reyna að komast á netið og þá eyðast allar upplýsingar um netið okkar. Installaði ég þá aftur routerinum og það virkaði allt svaka vel í gær:D En hvað gerist síðan í morgun þegar ég er tilbúin að fara að tala við mömmu og systur, sem ég er ekki búin að heyra í í langan tíma. Netið hættir að virka og það er aftur einhver service interruption í gangi. Þetta er ekki nógu gott og ef þetta heldur mikið lengur áfram þá heimta ég að sleppa að borga fyrir þessa daga sem við erum ekki með netið. En ég semsagt er núna á kaffihúsinu til að geta talað við mömmu sem er síðan ekki einu sinni á netinu, hafði greinilega ekki þolinmæði til að bíða í örfáar mínútur eftir mér. 

Við erum síðan að fara í messu eftir klukkutíma, fyrsta svartra manna messan okkar, Gospel-messa. Ég er mjög spennt. Búin að klæða mig í svarta fína kjólinn minn og læti:D. Á eftir verður síðan boðið uppá kaffi og líklega pönnsur á Harlem-heimilinu okkar fyrir alla vinina sem mæta í kirkju;). En ég læt aftr heyra í mér eftir messu og segi ykkur allt um þá reynslu!!

Sjáumst eftir 9 daga!!

2 comments:

Unknown said...

Komment

Unknown said...

úúú.. ég væri til í að fara í gospel messu - hljómar vel!

Annars hlakka ég til að sjá þíg um jólin stelpa!