Friday, January 30, 2009

Lífið tekur sinn vanagang

Þá eru öll frí búin og skólinn farinn á fullt, og svo sannarlega á fullt. En byrjum á partýinu fyrir hann Arnór minn. Ég tók Arnór út að borða á þennan líka svaka góða veitingastað sem við fórum á í haust. Arnór fékk sér aftur það sama, carbonara, en ég fékk með kálfakjöt í sítrónusósu. Ótrúlega góður matur. Eftir matinn röltum við á Corner Cafe, kaffihús, og ég fékk mér einn kaffibolla. Síðan langaði Arnór svo í cremé brulé en þá var ég búin að gleyma að þeir bjóða bara uppá mangó cremé brulé. Síðan byrjum við að borða og ég fatta það náttúrulega strax. Arnór fer að spyrja mig hvort mér finnist ekki eitthvað skrýtið bragð af þessu, svona súrt. Hann náttúrulega hélt að þetta ætti að vera venjulegt. Ég lét eins og ekkert væri og Arnór borðaði megnið af þessu en fannst þetta alls ekki gott. Það var mjög fyndið að fylgjast með því og ég er ekki enn búin að segja honum frá þessu:D Síðan fórum við heim og þegar heim var komið voru krakkarnir mættir og komu Arnóri á óvart með partý. Arnór er náttúrulega ekki búinn að kynnast neinum hérna þannig að þetta voru allt saman vinir okkar úr skólanum;). En það var alveg ótrúlega gaman!!
 
Restin af vikunni var voðalega róleg hjá okkur. Við vorum í rauninni bara að njóta þess að vera í fríi sem var ekkert alltof slæmt. Á föstudeginum rifum við okkur fram úr og fórum að skokka í Central Park. Ég hef ekki farið út að hlaupa í ég veit ekki hvað langan tíma, örugglega síðast þegar ég tók lokapróf í leikfimi í Versló og það er oooof langt síðan, þannig að ég var ekki beint í besta forminu. Við hlupum reyndar alveg í svona 20 mínútur þannig að ég giska að við höfum hlaupið kannski 3 km. Á sunnudeginum fórum við síðan á Metropolitan museum of Art sem var alveg ótrúlega gaman. Ég fjárfesti í einu plakati af mynd eftir Van Gogh. Síðasta vika var allt í allt mjög vel heppnuð og ég gæti ekki verið hamingjusamari með að hafa hann Arnór hjá mér. Tíminn líður eitthvað svo miklu hraðar. Allt í einu er janúar bara búinn.

Það var yndislegt að byrja aftur í skólanum. Alltof mikið af fríum búin að vera. Þrátt fyrir að fríin eru alltaf ljúf þá getur maður líka fengið nóg af því að liggja bara og gera ekki neitt. Ég ákvað að breyta stundatöflunni minni. Skipti úr balletttímum með Mr. Atwood (sem ég þoldi ekki í byrjun en var farin að líka vel við hann) og er núna alltaf í ballett fyrir hádegi sem er allt annað líf. Ég er núna með 3 ballettkennara, Turano á mánudögum og miðvikudögum, Ruiz á þriðjudögum og fimmtudögum og O'Brien og föstudögum. Gaman að segja frá því að O'Brien er hinn upprunalegi Billy Elliott. Sagan um Billy Elliott er semsgt byggð á honum. Þannig að hann er hinn eini sanni. Alls ekki slæmt. En hann er einmitt uppáhaldskennarinn minn í öllum heiminum akkúrat núna. Tímarnir hans eru mjög líkir tímunum hennar Gittu og Lauren sem mér fannst alltaf svo æðislegir. Mikið dansað hjá honum. Svo líkaði honum held ég bara helvíti vel við mig og mér gekk svo rosalega vel í tímanum hans. Er alveg í skýjunum yfir þessu öllu saman. 
Í gær var fyrsti spunatíminn okkar og guð hvað ég þurfti á því að halda. Þegar maður er í endalausum tæknitímum allan daginn þá er svo ótrúlega gott að fara í spuna og bara alveg sleppa sér. Það var mikið púlað og svitnað en það var algjörlega þess virði. Hlakka mjög til að fara í næsta spunatímann. Ég er líka komin í West African. Var í fyrsta tímanum mínum í dag sem var alveg ótrúleg skemmtilegur. Hann er líka alveg voðalega mikið svona frjálslegur. Maður gat alveg sleppt sér í ölum þessum svakalegu hreyfingum. Allt í allt er ég alveg rosalega ánægð með stundatöfluna mína.

Var að koma úr sturtu á föstudagskvöldi og hver veit, kannski kíki ég út á eftir. Tatiana ætlar að hringja í mig og við sjáum til. Er reyndar alveg rosalega aum í öllum líkamanum þannig að ég hefði svosem ekkert á móti því þótt að kvöldið endaði í bíómynd með kærastanum mínum:D

Sæl að sinni, ÓLöf

p.s. var að reyna að setja inn myndir en þetta er eitthvað að stríða mér! Myndir frá partýinu á facebook!

Saturday, January 24, 2009

Þá var maður klukkaður

Halla hefur víst klukkað mig í einhverjum leik sem er í gangi á meðal bloggheimsins og hér eru svörin mín:

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Unglingavinnan
Ræstitæknir
Danskennari
Skrifstofukona

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
Nói albínói
Englar alheimsins
Mýrin
Djöflaeyjan

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Berlín
Seltjarnarnes
Reykjavík
Harlem, NY

3.5. Einn staður sem ég myndi aldrei búa á:
Grænland

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Mallorka
Prag
Flórída
London

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Friends
Sex and the City
Desperate Housewives
How I met you mother

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:
facebook.com
gmail.com
hotmail.com
mbl.is

7. Fernt sem ég held upp á matarkyns:
Ávextir
Lax
Rjúpur
Cremé brulé

8. Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:
Aisha
Harry Potter bækurnar
Bækur e. Arnald Indriða
Dagbækur Berts

9. Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
101 Rvk
Þýskaland
Suður-Ameríka
Japan

10. Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Hildur systir
Guðni
Arnór 
Óðborgarmeðlimir


Tuesday, January 20, 2009

Gaman gaman

Nú er sko gleði á heimilinu okkar hérna í Harlem. Hann Arnór lenti í gærkvöldi og kominn til okkar fyrir fullt og allt, eða svona þannig séð. Hann verður semsagt hérna í þrjá mánuði að læra ensku í Parsons og svo kemur hann hérna í haust með mér til að hefja háskólanámið sitt í grafískri hönnun. Hann er voðalega spenntur. 

Helgin mín var mjög skemmtileg. Á laugardeginum fórum við Hildur að hitta krakkana á Union Square til þess að kaupa í matinn fyrir Quesadillas veisluna sem við vorum búin að plana. Við versluðum okkur fullt af osti, tortillaskökur og alls kyns grænmeti og kjöt. Síðan var farið heim til Nehuian um hálf4 til þess að hefja veisluhöldin. Það mættu reyndar ekki allir á réttum tíma en við vorum öll komin á endanum. Það var mjög gaman að elda heima hjá henni þar sem brunakerfið inni hjá henni var alltaf að fara í gang og það er víst ekki hægt að ýta á neinn svona takka eins og hjá okkur heldur þarf maður bara að opna gluggana og lofta út. Þar sem það var 14 stiga frost úti varð helvíti fljótt mjög kalt innandyra líka en við þurftum að reyna að þrauka á meðan verið var að steikja kjötið o.s.frv. Þegar eldamennskan var loksins búin var hafist handa og borðað eins og svín. Þetta var svo sjúklega gott og það bætti svo sannarlega bragðið að fá þessar fínu mexíkönsku sósur sem Nehuian hafði komið með að heiman eftir jólafríið. Ótrúlega sterkar en alveg ótrúlega góðar. Við létum bjórinn auðvitað ekki vanta eins og aldrei og það var svo sannarlega drukkið. Við vorum farin að fara í drykkjuleiki um hálf8 því við borðuðum svo snemma og byrjuðum að drekka svo snemma. Ekkert var sparað og áður en ég vissi af vorum við farin að taka vodkaskot og læti. Þegar klukkan var síðan orðin 10 færðum við okkur heim til Tatiönu þar sem Harry, maðurinn sem á íbúðina sem Nehuian býr í, var kominn heim. Alveg ótrúlega skemmtilegur dagur að mínu mati. Við Hildur og Victor fórum síðan bara heim með lestinni um 1. 

Sunnudagurinn var nú ekkert ofboðslega viðburðarríkur. Ég var eiginlega bara heima allan daginn ýmist að þrífa og taka til eða að hlakka til að hitta hann Arnór minn daginn eftir. En ég kláraði að þrífa og gera allt fínt fyrir hann áður en hann kæmi. Um klukkan 5 um morguninn á mánudeginum var síðan einhver fáviti sem byrjðai að hringja á bjöllunni hjá okkur og bara í öllu húsinu. Ég skyldi ekkert í þessu fyrst og var ennþá hálfsofandi en síðan þegar ég rankaði við mér þá varð ég svo hrædd því það var einhver maður, örugglega á einhverju, fyrir utan húsið að hringja á alla bjöllurnar í svona 20 mínútur. Hann öskraði líka "Lindsay" mörgum sinnum en það er stelpa í húsinu sem heitir Lindsay. Ég var svo skíthrædd um að hann kæmist inn eða eitthvað og færi að ganga berserksgang í húsinu. Sem betur fer gerðist það ekki og ég fór bara aftur að sofa yfir Friends því ég var orðin svo skelkuð. 
Á mánudeginum ætlaði ég síðan að vera ótrúlega öflug og fara í tíma í Cunninghamskólanum þar sem Ailey er í fríi. Þegar ég kem síðan á staðinn rétt fyrir 10 er hann lokaður út af því að það var víst Martin Luther King day í gær og ekki vissi ég neitt um það. Þannig að ég rölti bara aðeins um og fór svo bara aftur heim. Um kvöldið fór ég síðan loksins í lestina til að sækja Arnór á flugvöllinn. Hann átti að lenda 6:20 og ég var komin um hálf7 leytið á völlinn. Þar beið ég og beið og beið og beið. Loksins fékk ég sms frá Arnóri þar sem hann sagði að hann hefði verið að lenda og ætlaði að vera eldsnöggur út. Þá beið ég lengur og lengur og lengur. Arnór hringdi síðan í mig um korter yfir 7 til að segja mér að það væri ekki enn búið að hleypa úr vélinni. Loksins þegar þeim var síðan hleypt útúr vélinni þurfti aumingja fólkið að standa í endalaust langri röð í Customs draslinu sem er hérna í Ameríkunni. Arnór semsagt kom ekki út af flugstöðinni fyrr en rúmlega hálf9 og þá var ég sko glöð að sjá hann. Við tókum lestina heim og vorum komin heim um hálf11. Þá fengum við okkur pízzu því við vorum hvorug búin að borða kvöldmat og svo var farið að sofa. 

Nú er Arnór í stöðuprófi í Parsons til þess að sjá á hvaða leveli hann er í enskunni. Síðan fær hann að vita hvaða tíma hann þarf að mæta í. Þetta verður spennandi.

Sæl að sinni, Ólöf

Friday, January 16, 2009

Aftur frí

Þá er vikan mín í skólanum búin og vikufrí framundan. Ég veit ekki alveg hvernig ég er að fíla það en það er svosem ekkert alltof slæmt. Væri samt alveg eins og er til í að halda áfram bara til þess að ég fái ekki aftur þessar leiðinda harðsperrur þegar skólinn byrjar aftur að viku liðinni. Þess vegna þurfum við að halda okkur við. Ætlum að mæta reglulega í Steps, kíkja í jazz og hiphop og svona og svo vorum við Halla og Hildur að hugsa um að kíkja í Cunningham skólann og taka nokkra tíma þar. Það finnst még mjöööög spennandi þar sem ég elska Cunningham. Svo hafði ég líka hugsað mér að fara út að hlaupa í Central Park, hefur alltaf verið mikill draumur hjá mér að geta farið út að hlaupa í Central Park í New York. Skelli mér bara í lestina og tek einn stuttan. Hugsa að ég geti það í fyrramálið.

Við krakkarnir (Ég, Halla, Hildur, Victor, Nehuian, Tatiana, Natalia o.fl. nenni ekki að telja alla upp) ætlum að hafa smá svona hitting heima hjá Nehuian. Hún sagði okkur frá þessum ótrúlega góðu og sterku sósum sem hún var að koma með frá Mexico og umræðan leiddist út í það að við mundum öll fara heim til hennar að elda Quesadillas. Það hefur nú verið ákveðið að við ætlum að fara til hennar um hádegisbil og elda ljúffengan mexíkanskan mat með alltof sterkum sósum frá Mexico. Ég er mjög spennt. Svo er eitthvað í umræðunni að fara á hryllingsmyndina My Bloody Valentine sem er sýnd í 3D. Ég veit ekki alveg hvernig ég tek í þá hugmynd en það er allir eitthvað voðalega æstir yfir þessu þannig að kannski bara hef ég engan annan kost en að fljóta með. Æ, þetta verður bara gaman. 

Sunnudagurinn er ekkert sérstaklega planaður hjá mér. Finn mér eitthvað að gera. Fer kannski í bæinn að skoða föt sem ég hef ekki efni á, alltaf gaman. Window shopping!!
En svo bara er kominn mánudagur og þá er hann Arnór að koma. Ég ætla nú eflaust að fara í Steps í einhverja danstíma og svo kannski að athuga með stundatöfluna í Cunningham skólanum hvenær ég get mætt í tíma þangað. Svo er það bara í lestina og útá flugvöll til að sækja hann Arnór. Það verður voðalega nice að vera í fríi í viku þegar Arnór kemur, þá höfum við nægan tíma til að gera fullt af stöffi saman. Svo tekur alvaran við hjá okkur báðum 26.janúar. Þetta verður æðislegt.

Nóg af gestum eru á dagskrá hjá okkur aftur. Nú er það Halla sem ætlar að taka við öllu gestunum. Signý, vinkona hennar, var hérna yfir nótt að millilenda á leið til Kólumbíu. Síðan í mars minnir mig er Inga vinkona hennar að koma í viku held ég. Svo ætlaði frænka hennar eða frændi, man ekki, að kíkja kannski og mamma hennar og pabbi ætla að koma annað hvort í apríl eða maí. Það verður nóg að gera hjá henni. En Vigdís er að koma til NY í febrúar svo að ég fæ allavega að hitta hana. Verð að finna eitthvað til að gera skemmtilegt með henni. Hlakka allavega voðalega til að hitta hana. Svo er Þórdís vinkona hennar með henni líka.

En nóg í bili, læt heyra í mér fljótlega aftur!

- Ólöf (The Glue;D)

Tuesday, January 13, 2009

Fríið búið

Þá er ég komin aftur til New York. Skólinn byrjaði strax og það var enginn tími til að chilla eitthvað. Við fórum á fullt í gær og mér fannst eins og að allir vöðvar í líkamanum mínum hefðu horfið yfir jólin. Ég var nú samt ekkert svo þreytt eftir daginn í gær. Hins vegar þegar ég vaknaði í morgun þá fór ég að finna fyrir örlitlum harðsperrum í fótunum. Reyndi að gera það besta úr því í ballett og það gekk þokkalega. Síðan fór ég í Horton beint eftir ballett og það var erfitt. Ég hélt að ég væri að detta niður dauð. Svo var tíminn alveg extraerfiður líka þar sem allir voru búnir að vera í skólanum í viku á undan mér. Núna sit ég heima í hléinu mínu að reyna að slaka á áður en ég á að mæta í jazz hjá Ms. Wong. Ekki beint auðveldustu tímarnir. 

Fékk einkunnirnar mínar í gær. Var nú svosem ekkert eitthvað ógeðslega ánægð með þær. Er mjög óvön því að vera í lægri kantinum hvað einkunnir varðar. Kannski er B+ ekkert svo lélegt, ég veit það ekki. Fékk reyndar síðan bara C+ í Horton hjá Inman sem mér fannst glatað og ég skil ekki alveg hvernig ég gat fengið þá einkunn. Geri bara mitt besta þessa önn til að hækka í einkunn. 

En það sem er helst í fréttum hjá mér þessa stundina er að Arnór er að koma til mín í næstu viku til að búa hérna. Ég hlakka svoooooo mikið til að fá hann til mín, LOKSINS. Hann fer semsagt á enskunámskeið til að bæta einkunnina sína í enskunni og svo byrjar hann í BFA í grafískri hönnun eftir sumarið. Þetta verður svo margfalt skemmtilegra og auðveldara að hafa hann með mér. 

Jæja, hef ekkert meira að segja. Ekki beint mikið búið að gerast á einum og hálfum degi.

- Ólöf