Friday, January 16, 2009

Aftur frí

Þá er vikan mín í skólanum búin og vikufrí framundan. Ég veit ekki alveg hvernig ég er að fíla það en það er svosem ekkert alltof slæmt. Væri samt alveg eins og er til í að halda áfram bara til þess að ég fái ekki aftur þessar leiðinda harðsperrur þegar skólinn byrjar aftur að viku liðinni. Þess vegna þurfum við að halda okkur við. Ætlum að mæta reglulega í Steps, kíkja í jazz og hiphop og svona og svo vorum við Halla og Hildur að hugsa um að kíkja í Cunningham skólann og taka nokkra tíma þar. Það finnst még mjöööög spennandi þar sem ég elska Cunningham. Svo hafði ég líka hugsað mér að fara út að hlaupa í Central Park, hefur alltaf verið mikill draumur hjá mér að geta farið út að hlaupa í Central Park í New York. Skelli mér bara í lestina og tek einn stuttan. Hugsa að ég geti það í fyrramálið.

Við krakkarnir (Ég, Halla, Hildur, Victor, Nehuian, Tatiana, Natalia o.fl. nenni ekki að telja alla upp) ætlum að hafa smá svona hitting heima hjá Nehuian. Hún sagði okkur frá þessum ótrúlega góðu og sterku sósum sem hún var að koma með frá Mexico og umræðan leiddist út í það að við mundum öll fara heim til hennar að elda Quesadillas. Það hefur nú verið ákveðið að við ætlum að fara til hennar um hádegisbil og elda ljúffengan mexíkanskan mat með alltof sterkum sósum frá Mexico. Ég er mjög spennt. Svo er eitthvað í umræðunni að fara á hryllingsmyndina My Bloody Valentine sem er sýnd í 3D. Ég veit ekki alveg hvernig ég tek í þá hugmynd en það er allir eitthvað voðalega æstir yfir þessu þannig að kannski bara hef ég engan annan kost en að fljóta með. Æ, þetta verður bara gaman. 

Sunnudagurinn er ekkert sérstaklega planaður hjá mér. Finn mér eitthvað að gera. Fer kannski í bæinn að skoða föt sem ég hef ekki efni á, alltaf gaman. Window shopping!!
En svo bara er kominn mánudagur og þá er hann Arnór að koma. Ég ætla nú eflaust að fara í Steps í einhverja danstíma og svo kannski að athuga með stundatöfluna í Cunningham skólanum hvenær ég get mætt í tíma þangað. Svo er það bara í lestina og útá flugvöll til að sækja hann Arnór. Það verður voðalega nice að vera í fríi í viku þegar Arnór kemur, þá höfum við nægan tíma til að gera fullt af stöffi saman. Svo tekur alvaran við hjá okkur báðum 26.janúar. Þetta verður æðislegt.

Nóg af gestum eru á dagskrá hjá okkur aftur. Nú er það Halla sem ætlar að taka við öllu gestunum. Signý, vinkona hennar, var hérna yfir nótt að millilenda á leið til Kólumbíu. Síðan í mars minnir mig er Inga vinkona hennar að koma í viku held ég. Svo ætlaði frænka hennar eða frændi, man ekki, að kíkja kannski og mamma hennar og pabbi ætla að koma annað hvort í apríl eða maí. Það verður nóg að gera hjá henni. En Vigdís er að koma til NY í febrúar svo að ég fæ allavega að hitta hana. Verð að finna eitthvað til að gera skemmtilegt með henni. Hlakka allavega voðalega til að hitta hana. Svo er Þórdís vinkona hennar með henni líka.

En nóg í bili, læt heyra í mér fljótlega aftur!

- Ólöf (The Glue;D)

No comments: