Fékk einkunnirnar mínar í gær. Var nú svosem ekkert eitthvað ógeðslega ánægð með þær. Er mjög óvön því að vera í lægri kantinum hvað einkunnir varðar. Kannski er B+ ekkert svo lélegt, ég veit það ekki. Fékk reyndar síðan bara C+ í Horton hjá Inman sem mér fannst glatað og ég skil ekki alveg hvernig ég gat fengið þá einkunn. Geri bara mitt besta þessa önn til að hækka í einkunn.
En það sem er helst í fréttum hjá mér þessa stundina er að Arnór er að koma til mín í næstu viku til að búa hérna. Ég hlakka svoooooo mikið til að fá hann til mín, LOKSINS. Hann fer semsagt á enskunámskeið til að bæta einkunnina sína í enskunni og svo byrjar hann í BFA í grafískri hönnun eftir sumarið. Þetta verður svo margfalt skemmtilegra og auðveldara að hafa hann með mér.
Jæja, hef ekkert meira að segja. Ekki beint mikið búið að gerast á einum og hálfum degi.
- Ólöf

2 comments:
Úlalla, en hvað ég er glöð að heyra fyrir þína, og ykkar hönd að þetta með skólann hans sé loksins komið á hreint!! Verður örugglega geðveikt að hafa hann hjá sér...
En þú massar þá bara einkunnirnar núna eftir jól ef þú ert ekki nógu sátt með fyrstu einkunnirnar, það er ekkert annað í stöðunni;)
En hafðu það voðalega gott dúlla, hlakka til að sjá þig aftur í sumar:)
Bíddu, hvað er að gerast?!?! Ég er búin að blogga TVISVAR og ekkert komment komið frá þér! ;)
Post a Comment