Monday, February 9, 2009

Músavandræði og fleira


Síðasta helgi var rosalega góð, og margt var gert, aldrei þessu vant. Við Arnór ákváðum að við vildum fara og sjá snjóbrettadúddana renna sér niður brekkurnar í East River Park þannig að við skelltum okkur af stað um 11 leytið. Byrjuðum reyndar á því að athuga í Radio City til að sjá hvort enn væru til miðar á Flight of the Conchords (tveir gæjar frá Nýja Sjálandi með uppistandi, youtube) OG ÞAÐ VORU TIL MIÐAR. Þannig að við Arnór erum að fara saman á bestu sýningu ever, vonandi, 14.apríl komandi. Eftir það tókum við lestina niður eyjuna til þess að fara á snjóbrettasýninguna. Tókum síðan víst vitlausa lest og fórum aðeins of langt, klaufar sem við getum verið. Þannig að þetta endaði í rauninni bara á því að við fórum í Ansi langan labbitúr. Löbbuðum meðfram eyjunni austan megin sem var bara rosalega gaman. Arnór tók nokkrar myndir og við komumst síðan að East River Park á endanum. Vorum reyndar held ég ekki komin fyrr en bara þegar þetta var að enda og ekki beint mikið að gerast. Þannig að við löbbuðum áleiðis í næstu lestarstöð. Sem var svo sannarlega ekki nálægt. En við meikuðum það á endanum heim. Vigdís og Þórdís höfðu komið til NY á föstudeginum og ég bjallaði í þær á laugardagskvöldinu til að vita hvort þær vildu ekki gera eitthvað skemmtilegt. Ég fór síðan heim til þeirra (heim til frænku Þórdísar) og við skelltum okkur á bar til að fá okkur nokkra bjóra. Ég var svo ótrúlega glöð að hafa komist inná bar og geta keypt mér bjór á barnum án þess að vera beðin um skilríki því það hefur mér enn ekki tekist síðan að ég kom út. Eftir mjög athylgisverð samtöl við skemmtilega fólkið á barnum vildu stelpurnar reyna að finna einhverja klúbba. Þegar það fór í hundana bauð ég þeim heim til mín þar sem búið var að myndast heljarinnar partý víst. Þær stoppuðu nú ekki lengi þar sem við ætluðum í Gospel messu daginn eftir.

Ég hitti þær rétt rúmlega 10 um morguninn og við röltum saman að kirkjunni frægu í Harlem. Það stóðum við í röð til svona rétt fyrir 12 og við vorum komnar frekar framarlega. Þá allt í einu kemur maður út og segir að kirkjan sé full og ekki fleiri komist inn. Málið er nefninlega það að það er alltaf endalaus röð af túristum sem bíða fyrir utan til að fá að komast inn því þetta á víst að vera svaka messa í þessari kirkju. Við semsagt komumst ekki inn og enduðum á IHOP (International House Of Pancakes). Ömurleg þjónusta þar en pönnukökurnar næstum alveg þess virði að láta fara svona illa með sig;). Eftir það vorum við allar svo pakksaddar að leiðir skildust og ég fór heim í letikast. Lá uppí rúmi hálfsofandi hálfvakandi, pakksödd að horfa á myndir það sem eftir var af deginum. Var voða ljúft reyndar. Síðan kom kvöldið. 
Við Arnór höfðum setið í rólegheitum uppí rúmi bæði í sitthvorri tölvunni bara minding our own þegar Arnór allt í einu grípur í mig. Hann sá MÚS!!! Ég sá hana ekki þannig að ég reyndi að vera róleg þar til að kvikindið kom aftur fram og var bara eitthvað röltandi inni í herbergi eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég hélt ég væri að fara yfirum og ég öskraði eins og ég veit ekki hvað og Arnór öskrandi á mig að segja mér að róa mig. Músin slapp bakvið kommóðuna, eða svo hélt hún;). Þetta var samt ekki búið. Við settum gildruna upp við hliðina á k0mmóðunni. Síðan kemur andsk.... músin aftur fram og fer inná bað. Þar sé ég hana vera að reyna að stökkva ofan í baðkarið sem ég skil ekki af hverju vegna þess að þar eru engin göt eða holur eða neitt og hún gæti ekki komist í niðurfallið heldur. Voðalega dularfullt. Arnór stendur upp með kassa í annarri hendinni og regnhlíf í hinni. En músin sleppur aftur. Svona gekk þetta á alveg í soldið langan tíma þegar við vorum síðan orðin svo ótrúlega þreytt að við steinrotuðumst. Morguninn eftir vakna ég og hvað sé ég, músafjandinn kominn í gildruna. Við drápum ófétið! Meindýraeyðirinn er að koma á morgun til þess að loka fyrir holur og svoleiðis. Ég hlakka mjög til. En það er greinilega augljóst að það er ekki hægt að komast hjá því að mýs séu á heimilum New York borgar. 

1 comment:

Unknown said...

Hahaha, þannig að þegar þú ert búin að lenda í þessu svona tíu sinnum þá kannski, kannski hættiru að fara í kerfi???? ;)