Góðan daginn gott fólk og velkomin á fætur. Ég er semsagt vöknuð hér í New York, klukkan hálf9 á sunnudagsmorgni þrátt fyrir að ég hafi ekki farið að sofa fyrr en að verða 3 í nótt. Þannig er nefninlega það að á miðvikudagskvöldinu síðasta var hringt í mig af konu sem heitir María Mjöll. Hún fékk númerið mitt hjá Lilju sem ég þekki úr Listdansskólanum heima. Ástæðan fyrir símhringingunni hennar er sú að hún ætlar að bjóða okkur að vinna á Þorrablóti Íslendingafélagsins hér í New York en það var haldið í gærkvöldi. Í fyrstu ætlaði ég ekki að taka starfinu því að ég ætlaði að hafa örlítið afmælisboð í gær en svo þegar hún sagði mér að þetta væru 100 dollarar á mann þá ákváðum við bara að slá til, og sjáum svo sannarlega ekki eftir þeirri ákvörðun. Þannig að í gær um 6 leytið mættum við Arnór og Halla á staðinn, 76th and Central Park West. Þetta var kirkja sem okkur fannst soldið fyndið en mjög flottur salur. Þessi kirkja var svona álíka stór og Hallgrímskirkja. Það sem við áttum að gera þetta kvöld var mjög basic og einfalt. Okkar starf í byrjun kvölds var m.a. að taka við miðum og greiðslum þegar fólk labbaði inn og einnig að blanda fordrykkinn og hella honum í glös. Við skiptum okkur öll niður á sitthvort verkefnið. Þegar það var búið var okkar djobb í rauninni bara að hjálpa kokkunum að ýmist bera fram matinn á hlaðborðið og síðan að taka diskana af borðunum en það endaði með því að fólkið kom allt með diskana sjálft fram í eldhús þannig að allt sem við þurftum að gera var að skafa af diskunum og stafla þeim upp. Svo fengum við líka að setja skyrið í diska og skreyta það með sýrópi og lemon curd, það var mjög skemmtilegt djobb;) Síðan byrjaði ballið og þar sem við höfðum það frekar rólegt eftir að hafa gætt okkur á dýrindis íslenskum þorramat þá máttum við skella okkur á dansgólfið og taka nokkur spor. Það var sko ekki amalegt. Ógeðslega fyndið samt að þetta var haldið í kirkju. Plötusnúðarnir voru bakvið altarið og allir djammandi og djúsandi, í Kirkju!!! Og gaman líka að segja frá því að það var fullt af íslendingum þarna sem ég vissi ekki einu sinni að væru í New York m.a. Jón Ragnar, Þorvaldur Davíð (vissi reyndar að hann er í Julliard), Ari Bragi, Sindri Eldon, Heiða úr Idolinu og margir fleiri!
Þegar kvöldinu var að fara að ljúka, en það átti að enda klukkan 1, þá hófum við að taka glösin og tómar flöskur af borðunum. Það tók sko sinn tíma, við vorum að því frá rétt rúmlega 11 til hálf2. En það var ekki allt sem við gerðum í lok kvöldsins. Þar sem það var svo óhemju mikill afgangur á mat þarna þá fengum við að næla með okkur 6 stykkjum af saltkjöti, 2 hangikjötum, fullt af rúgbrauði og skyri, snittubrauð, harðfisk, sýróp, lemon curd, hvítvín, heila flösku af London Dry Gin sem einhver hafði skilið eftir og ég veit ekki hvað og hvað. Semsagt matabirgðir fyrir næsta mánuð sem er alls ekki slæmt. Og ofan á það fengum við 100 dollara á mann fyrir kvöldið. Þetta var ljúft kvöld!
Þá er afmælið mitt í dag, og kannski líka pínu í gær;). Við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni af deginum. Ég hugsa að við skellum okkur á eitthvað gott kaffihús, kannski bara Corner Café, og snæðum okkur á einhverjum dýrindishádegismat. Síðan ákváðum við í gær að við ætlum að klúbbast næsta laugardag, þurfum bara að redda nokkrum skilríkjum og þá erum við good to go. Ég er orðin soldið þreytt á partýum hérna heima hjá okkur. Það verður sweeeeeeet!!!
En nóg í bili. Ólöf afmælisbarn:D