Wednesday, April 15, 2009

6 vikur eftir

Þá er kominn 15.apríl. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt hérna, miklu hraðar en fyrir jól. Það er nóg búið að vera að gera hérna hjá okkur og nóg eftir þar til við komum heim. Reyndar er Arnór að fara heim á föstudaginn þannig að það er stutt eftir fyrir hann. Hann er að fara í lokprófin sín í enskunni á morgun og ætlar auðvitað að massa þau;). Fékk síðan bréfið frá Parsons heim um að hann sé kominn inn í grafíska hönnun, bachelorinn. Þannig að þegar hann kemur heim þá verður farið á fullt með að redda Visanu og lánum fyrir þessu alltof dýra námi hérna í Bandaríkjunum. Ég kvíði semí fyrir að hann sé að fara, það verða viðbrigði að hafa ekki alltaf einhvern hjá sér, en ég vona að þetta verði fljótt að líða. Eins og ég sagði þá er nóg fyrir stafni hérna sérstaklega þegar veðrið fer að batna. Við erum búin að bíða eftir góða veðrinu svo lengi og það kemur svona einn og einn dagur sem er kannski svona 16 en svo er mín vegna snjór daginn eftir. Frekar erfitt að búa á svona lítilli eyju, en maður ætti nú að vera vanur því að veðrið breytist á hverri mínútu. Það á nú að hitna um helgina þannig að sumarið er óðum að nálgast (náum kannski góðu tani áður en við komum heim á klakann).

Mig langar að segja ykkur frá ferðinni okkar Arnórs að sjá Flight of the Conchords. Þetta eru tveir gaurar frá Nýja Sjálandi, vitið nú eflaust hverjir þetta eru, en þeir eru semí vinsælir hérna. Það er verið að sýna þættina þeirra í sjónvarpinu hérna og ef mér skjátlast ekki þá held ég að stöð2 hafi verið að sýna eitthvað af þeim líka. Allavega þá fórum við á sýningu með þeim og þeir eru án gríns fáránlega fyndnir Live. Á undan þeim kom stelpan sem leikur líka í þáttunum, hún leikur aðalaðdáendann þeirra og er alveg sjúklega fyndin. Hún var svoooo góð að ég hló mig máttlausa. Arnór skammaðist sín meira að segja soldið fyrir mig hversu hátt og mikið ég hló, hehe! Við skemmtum okkur konunglega.

Það er búið að vera þónokkuð af gestum hérna hjá okkur, þ.e.a.s. hjá Höllu. Frænkur hennar komu í vikuheimsókn í fríinu okkar, spring break, og það var bara rosalega gaman að hafa þær. Hún Inga, vinkona Höllu, var hérna hjá okkur í 6 daga, var að fara í dag, og svo eftir 2 vikur eða 30.apríl eru foreldrar hennar að koma í heimsókn. Ég er satt að segja mjög spennt að fá þau í heimsókn og hafa þau hjá okkur:D. Þá er tíminn líka svo fljótur að líða eitthvað þegar það er fullt af heimsóknum og svona. En heimsóknirnar eru ekki búnar eftir að mamma og pabbi Höllu eru farin. Hann Kristján, frændi minn reyndar líka, er að koma hingað 22.maí að heimsækja Höllu. Þá verðum við reyndar búnar að flytja úr íbúðinni en það verður samt bara gaman. Ég þarf eflaust að búa á uppblásinni vindsæng í viku nema að ég fái að gista hjá Suður-Amerísku krökkunum á 128. stræti;). Við Arnór höfum semsagt ákveðið að leigja okkur geymslu í stað þess að ég reyni að finna íbúð, flytji í nýju íbúðina ooog finna aðra til að leigja hana í sumar, á aðeins einni viku og ein. Nei við ætlum svo bara að koma til baka 18.ágúst og taka okkur um viku í að finna nýja íbúð og flytja. Svo höfum við aðra viku til að fara í smá frí til Miami:D. Smá sól fyrir skólann og stritin! Og já ég keypti flugmiða heim 27.maí þannig að þið megið búast við mér morguninn 28.maí sem er fimmtudagur og það eru einmitt nákvæmlega 6 vikur í að ég stigi í flugvélina:D (já, ég er búin að telja).

Ég á að fá einkunnirnar mínar úr dansprófunum sem ég var í vikuna eftir spring break, í næstu viku. Eða það er það sem er verið að segja í skólanum;) (það vill enginn segja okkur neitt). Ég er orðin soldið spennt að sjá hvað ég fæ því "dómararnir" (kennararnir sem dæma í prófunum) eru allir hlutlausir og hafa ekki verið að fylgjast með okkur í vetur og þá sér maður sirka hvar maður stendur. Hinar einkunnirnar verður öruggglega ekki tilbúnar fyrr en í lokin á vetrinum, semsagt frá kennurunum okkar. Þá fæ ég líka að vita hvort ég fái að fara á hærra level í tímunum, aðallega ballett og Horton.

En við sjáumst eftir 6 vikur elskurnar mínar! Ég er farin að hanga með kærstanum mínum sem er að yfirgefa mig ekki á morgun heldur hinn :'(

- Ólöf Helga


2 comments:

Unknown said...

Bíddu....er hann ekki unnusti núna??? ;) Hlakka til að hittast loksins 5.júlí, Ingibjörg Steinunn bíður spennt eftir að hitta frænkur sínar. :)

Arnór og Ólöf said...

Hehe jú ætli það ekki......finnst það ennþá hljómar svo skringilega eitthvað! Ég hlakka líka til að hitta hana Ingibjörgu