Helgin er búin að vera þokkaleg hjá mér. Á fimmtudeginum fór ég út að borða með Ólöf og co. í tilefni af útskriftinni hennar. Ég keypti mér svaka fínan kjól í Urban í tilefni af því og það var ótrúlega gaman. Við fórum á japanskan veitingastað og fengum okkur Sushi. Það var ótrúlega gaman og rosa góður matur, þrátt fyrir að Benni hafi sagt að þetta væri svo sannarlega ekki japanskt Sushi og hann var engan veginn sáttur með það. En hann sætti sig nú samt við það;). Eftir það fórum við á tyrkneskan bar sem var rétt hjá veitingastaðnum og þar var verið að bjóða uppá að kaupa vatnspípur. Við skelltum okkur á eina með eplabragði; ég, Ólöf, Einar og kærastan hans Lynne sem er m.a. alveg rosalega skemmtileg. Hún er frá Svíþjóð, ljóshærð og 180 sm á hæð. Alveg órtúlega falleg og mjög skandínavísk í útliti. Og svo fengum við okkur frozen margaritas með. Það var mjög gaman. Þetta var útskriftarkvöldið hennar Ólafar og við þurftum svo sannarlega að sletta úr klaufunum í tilefni af því þannig að við yfirgáfum hópinn, sem vildi bara fara heim, og skelltum á klúbb í Chelsea. Hann var alveg ágætur svosem, fílaði ekki alveg nógu vel DJ-inn en það var nú samt gaman þar sem það er alltaf gaman hjá okkur Ólöfu þegar við förum út saman.
Föstudagurinn var mjög viðburðarlítill hjá mér. Það var rosalega heitt og gott veður þannig að ég skellti mér í Central Park í þynnkunni og lagði mig í sólbað. Ólöf fór að hitta familíuna.
Laugardagurinn var hins vegar rosalega skemmtilegur. Ég fór og hitti Ólöfu, Hjördísi og Önnu í Soho og við röltum um, fengum okkur kaffi og bara kósýheit. Síðan skelltum við okkur með Benna til Williamsburg í Brooklyn þar sem var rosalega gaman að sjá. Mjög skemmtilegt hverfi en hins vegar mjög dýrt að búa þar. Svo fórum við aftur á eyjuna, Manhattan, til að fá okkur að borða. Planið var að fara á einhvern mexikanskan stað og Einar var búinn að finna einn á netinu en svo þegar á staðinn var komið var bara enginn mexikanskur veitingastaður í sjónmáli þannig að við enduðum á einhverjum mjöööög amerískum BBQ-stað. Þetta var alveg rosalega genuine amerískt. Það var ekkert nema kjöt á matseðlinum og þegar við fengum matinn þá var líka BARA kjöt á diskum okkar. Ekkert salat eða sósa eða neitt sem fylgdi með réttunum eins og er eðlilegt á flestum venjulegum veitingastöðum. Þrátt fyrir það var gaman að prófa þetta. Einar fór með okkur á einhvern Rooftop-bar þarna rétt hjá sem var rosalega spes. Mjög fyndið að koma þangað. Þetta var mjög hip staður, voða fansí, en það fyndna var að það voru rauður sloppar í boði til að fara í því þetta var uppá þaki og örlítið kludalegt svona seint að kvöldi. Við tókum okkur öll saman til (nema Einar og Anna: vildu ekki vera nörd) og skelltum okkur í einn rauðan. Mér leið eins og að þetta væri einhverskonar bræðralagssamkoma eða eitthvað og það ætti að fara fram fórn eða eitthvað álíka. Við skemmtum okkur ágætlega þar. Eftir það ákvað ég að skella mér heim með lestinni þar sem klukkan var orðin ansi margt.
Ég er búin að vera að pakka í allan dag og er svo sannarlega sátt með árangurinn. Allt stöffið komið í ýmist kassa eða ferðatöskur og nú þarf bara að bera þetta niður í bílinn á þriðjudaginn til að keyra það í geymsluna. Ég hlakka svoooo til að flytja úr þessari íbúð aðallega því að þá getum við Arnór loksins fengið okkar eigin íbúð sem verður ÆÐI. Á morgun ætlum við Ólöf Ruth að fara í ferðalag til Coney Island þar sem er að finna Tivolí og einhver skemmtilegheit. Ég ætla að gera mitt besta og eyða eiginlega helst engum pening en við sjáum hvernig það fer.
Svo mun ég vera á leið heim á miðvikudaginn!!!:D Ójá....það verður gaman.
Jæja nú ætla ég að reyna að leggjast aftur og reyna að sofna, enn einu sinni enn.
Þetta er í síðasta skipti sem ég blogga sem fyrsta árs nemi hér í New York.
See ya suckers, Ólöf Helga

2 comments:
Við hlökkum ótrúlega til að sjá þig
Og ég hlakka til að sjá ykkur!!:D
Post a Comment