Það er fólk að koma að skoða íbúðina í dag, einhver stelpa sem hafði komið áður og er að koma aftur með herbergisfélugum sínum sem er góðs viti. Vonum að eitthvað gerist í þeim málum.
Föstudaginn í síðustu viku, semsagt 8.maí, fórum ég, Victor, Natalia, Tatiana og Nicole að klúbbast. Við fórum með Victor á Gay club og þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert á ævinni. Klikkuð danstónlist allt kvöldið og fullt af hálfnöktum karlmönnum dansandi uppá borðum, alveg eins og í bíómyndunum. Við hlógum okkur máttlausar yfir öllum gæjunum þarna. Þetta var svo svakalegt kvöld og ég er svo sannarlega til í að endurtaka það.
Á föstudeginum 15.maí skelltum við Ólöf okkur á Angels and Demons, bíómyndina sem var að koma út. Ég hafði verið búin að lesa bókina sem var snilld þannig að mér fannst myndin bara semí sko en Ólöf sem hafði ekki séð hana fannst hún bara mjög góð. En ég mæli eindregið með að þið lesið bókina fyrst, annars eruði að missa af miklu skal ég segja ykkur.
Bara þrír skóladagar eftir, 9 tímar. Ótrúlegt að heilt ár hefur liðið hérna í Alvin Ailey og bara 2 ár eftir. Ég er að flytja úr þessari íbúð síðan 26.maí og Ólöf og Lindsay ætla að hjálpa mér að bera draslið. Ég er búin að leigja geymslu fyrir draslið okkar Arnórs, sem er ekki mikið, og leigði líka sendibíl til að koma dótinu á leiðarenda. Það verður gaman að sjá hvernig gengur að keyra kvikindið :S......ég er pínu stressuð að fara að keyra hérna en ég keyri bara hægt og ekki þar sem mikil umferð er. Vonum að flutningurinn taki ekki lengur en 2 tíma og svo er ég bara að fljúga heim daginn eftir. Á að lenda heima á Íslandi morguninn 28.maí. Er spenntari og spenntari með hverjum deginum, núna eru bara 9 dagar þangað til að ég stíg í vélina:D!
Ólöf er að útskrifast úr háskólanum sínum á fimmtudaginn í næstu viku og í tilefni af því þá eru mamma hennar og pabbi auðvitað að koma í heimsókn ásamt frænku hennar. Þau ætla að fara eitthvað fínt að borða á fimmtudagskvöldinu og buðu mér að koma með, ég er svaka spennt:D
Annars er ekkert meira í gangi hjá mér á næstunni, veðrið er ekki alveg eins og ég hafði vonað að það væri á þessum tíma en ég vona bara að það komi einhver klikkið hitabylgja eða eitthvað rétt áður en að ég fer heim til að vera allavega aðeins brúnni en næpa þegar ég kem heim.
Sjáumst fljótlega öllsömul!
- Ólöf
p.s. ástæðan fyrir ljósmyndaleysi hjá mér síðastliðna mánuði er sú að myndavélin mín bilaði og ég er að plana að versla mér nýja þegar ég af einhverjum ástæðum eignast allt í einu fullt af pening;)

1 comment:
Ég vona líka að það komi klikkið hitabylgja hjá þér ;) Góða skemmtun að flytja...
Post a Comment