Restin af vikunni var voðalega róleg hjá okkur. Við vorum í rauninni bara að njóta þess að vera í fríi sem var ekkert alltof slæmt. Á föstudeginum rifum við okkur fram úr og fórum að skokka í Central Park. Ég hef ekki farið út að hlaupa í ég veit ekki hvað langan tíma, örugglega síðast þegar ég tók lokapróf í leikfimi í Versló og það er oooof langt síðan, þannig að ég var ekki beint í besta forminu. Við hlupum reyndar alveg í svona 20 mínútur þannig að ég giska að við höfum hlaupið kannski 3 km. Á sunnudeginum fórum við síðan á Metropolitan museum of Art sem var alveg ótrúlega gaman. Ég fjárfesti í einu plakati af mynd eftir Van Gogh. Síðasta vika var allt í allt mjög vel heppnuð og ég gæti ekki verið hamingjusamari með að hafa hann Arnór hjá mér. Tíminn líður eitthvað svo miklu hraðar. Allt í einu er janúar bara búinn.
Það var yndislegt að byrja aftur í skólanum. Alltof mikið af fríum búin að vera. Þrátt fyrir að fríin eru alltaf ljúf þá getur maður líka fengið nóg af því að liggja bara og gera ekki neitt. Ég ákvað að breyta stundatöflunni minni. Skipti úr balletttímum með Mr. Atwood (sem ég þoldi ekki í byrjun en var farin að líka vel við hann) og er núna alltaf í ballett fyrir hádegi sem er allt annað líf. Ég er núna með 3 ballettkennara, Turano á mánudögum og miðvikudögum, Ruiz á þriðjudögum og fimmtudögum og O'Brien og föstudögum. Gaman að segja frá því að O'Brien er hinn upprunalegi Billy Elliott. Sagan um Billy Elliott er semsgt byggð á honum. Þannig að hann er hinn eini sanni. Alls ekki slæmt. En hann er einmitt uppáhaldskennarinn minn í öllum heiminum akkúrat núna. Tímarnir hans eru mjög líkir tímunum hennar Gittu og Lauren sem mér fannst alltaf svo æðislegir. Mikið dansað hjá honum. Svo líkaði honum held ég bara helvíti vel við mig og mér gekk svo rosalega vel í tímanum hans. Er alveg í skýjunum yfir þessu öllu saman.
Í gær var fyrsti spunatíminn okkar og guð hvað ég þurfti á því að halda. Þegar maður er í endalausum tæknitímum allan daginn þá er svo ótrúlega gott að fara í spuna og bara alveg sleppa sér. Það var mikið púlað og svitnað en það var algjörlega þess virði. Hlakka mjög til að fara í næsta spunatímann. Ég er líka komin í West African. Var í fyrsta tímanum mínum í dag sem var alveg ótrúleg skemmtilegur. Hann er líka alveg voðalega mikið svona frjálslegur. Maður gat alveg sleppt sér í ölum þessum svakalegu hreyfingum. Allt í allt er ég alveg rosalega ánægð með stundatöfluna mína.
Var að koma úr sturtu á föstudagskvöldi og hver veit, kannski kíki ég út á eftir. Tatiana ætlar að hringja í mig og við sjáum til. Er reyndar alveg rosalega aum í öllum líkamanum þannig að ég hefði svosem ekkert á móti því þótt að kvöldið endaði í bíómynd með kærastanum mínum:D
Sæl að sinni, ÓLöf
p.s. var að reyna að setja inn myndir en þetta er eitthvað að stríða mér! Myndir frá partýinu á facebook!
